„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð ráð sem koma í veg fyrir að þú klúðrir grillmatnum

Grill­klúður stafa oft af því að eld­un­ar­tími hvers hrá­efnis fyrir sig er ekki sá sami. Það lítur fal­lega út að setja kjöt, paprikur, lauk og sveppi saman á spjót en þessi hrá­efni þurfa mis­langan tíma á grill­inu og jafn­vel mis­mik­inn hita. Ein­fald­ast er að hafa kjötið sér á spjóti og græn­metið sér á spjóti og jafn­vel má hafa bara sveppi á einu spjóti, bara paprikur á öðru o.s.frv.

Góð ráð sem koma í veg fyrir að þú klúðrir grillmatnum

Snúið matnum helst aðeins einu sinni á grill­inu.

Ekki stinga í kjötið með gaffli til að snúa því, það opnar kjötið og hleypir út góm­sætum safanum. Notið frekar tengur.

Penslið heita grind­ina með olíu áður en byrjað er að grilla.

Ef gleymst hefur að þrífa grillið eftir síð­asta skipti er best að kveikja upp í grill­inu og láta grind­ina hitna vel svo leif­arnar brenni á henni. Burstið svo brunnar leif­arnar af með löngum vír­bursta.

Blandið aldrei saman hráu og eld­uðu. Setjið mat­inn aldrei aftur í sama fatið eftir að búið er að grilla hann.

Salt og pipar eru gríð­ar­lega mik­il­væg þegar kemur grill­mat en salt dregur vökvann úr hrá­efn­inu og því ætti aldrei að salta mat fyrir grillun heldur eft­irá.

Þegar kjöt er þurrkryddað er gott að skera grunnar rákir ofan í það áður en krydd­blönd­unni er nuddað á því þá nær krydd­bragðið lengra inn í kjötið. Þegar kjúklingur er krydd­aður á þennan hátt er gott að setja krydd­blönd­una bæði inn­undir skinnið og utan á.

Þegar grillað er á kola­grilli er best að kveikja upp í grill­inu 30-40 mín. áður en byrjað er að grilla. Það gefur kol­unum tíma til að ná réttum hita.

Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að for­hita grillið vel áður en mat­ur­inn er settur á það. Vel heppnuð grillun felst í því að steikja ysta lag hrá­efn­is­ins hratt og mynda þannig bragð­mikla skorpu utan um safa­ríka miðju. Ef grillið er ekki nógu heitt er hætt við að kjötið verði seigt, þurrt og bragð­dauft.

Gasgrill þurfa 10-15 mín. til að hita upp hraun­grjótið ef það er til staðar.

Þegar verið er að grilla þarf oft að hafa hraðar hendur og þess vegna er best að hafa allt sem þarf við hönd­ina frá upp­hafi, t.d. tengur, spaða, krydd­lög til að pensla með, salt, pipar o.s.frv.

Ekki freist­ast til að færa eða fikta í mat fyrstu mín­út­urnar sem hann er á grill­inu. Flest hrá­efni fest­ist við grill­grind­ina fyrstu mín­út­urnar en þegar skorpan hefur mynd­ast er ekk­ert mál að snúa matnum við.

Ekki ofhlaða á grill­grind­ina. Ef of mik­ill matur er settur á grillið í einu er hætt við að mat­ur­inn verði frekar blautur en stökkur.

Athugið reglu­lega hvort mat­ur­inn er til­bú­inn og byrjið að athuga nokkrum mín­útum áður en mat­ur­inn ætti að vera til­bú­inn. Það verður ekki aftur snúið ef steikin er orðin ofelduð.

Ekki yfir­gefa svæðið. Matur er fljótur að eld­ast yfir heitum log­unum og einnig er alltaf mögu­leiki á því að slys eigi sér stað í kringum sjóð­andi heitt grillið.

Hreinsið grillið eftir hverja notkun. Hrein grill­grind kemur í veg fyrir að mat­ur­inn fest­ist. Ef grill­grindin er þakin brenndum mat­ar­leifum er hætt við að nýi mat­ur­inn beri bragð af þeim gamla auk þess sem hann verður sótugri. Burstið grind­ina með stífum vír­bursta á meðan hún er enn heit.

Umsjón / Guðrún Vaka Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matarfróðleikur

Smjer sósur um páskana
Mannlífið

Smjer sósur um pásk­ana

Mat­reiðslu­mað­ur­inn Guðjón Þór Guð­munds­son og Hrafn­kell Guðnason við­skipta­fræð­ingur standa að baki Smjer en fyr­ir­tækið var stofnað á síð­asta ári. Sósurnar eru full­komnar á páska­borðið í ár. Með sós­unum frá Smjer losnar þú við til­standið sem fylgir því að gera góða sósu frá grunni en þrátt fyrir það er útkoman sú sama. Ljúffeng, heima­til­búin sósa! Mörgum vex í augum að laga...
Notuðu rúmlega 800 kíló af smjöri í stærsta piparkökuhús heims
Mannlífið

Notuðu rúm­lega 800 kíló af smjöri í stærsta pip­ar­köku­hús heims

Pip­ar­köku­húsin – Hvaðan koma þau? Það hefur lengi verið hefð að skreyta pip­ar­kökur þegar nálg­ast fer jólin. Sumir setja saman pip­ar­köku­hús og víða um heim er blásið til sam­keppna þar sem stærstu og best skreyttu húsin fá verð­laun. Hefðin fyrir skreyttum pip­ar­köku­húsum hófst í Þýska­landi í byrjun 18. aldar og á rætur sínar að rekja til vin­sælu sög­unnar Hans og...
Borðar þú avocado? Hér eru fimm góðar ástæður til þess að byrja á því
Mannlífið

Borðar þú avocado? Hér eru fimm góðar ástæður til þess að byrja á því

Avókadó getur haft marg­vís­legan heilsu­fars­legan ávinn­ing, þar á meðal að bæta melt­ingu, draga úr hættu á þung­lyndi og minnka hættu á krabba­meini. Einnig þekktur sem krókó­díla pera eða lárpera, er avókadó í raun teg­und af berjum sem vaxa í heitu lofts­lagi. Avókadó veita umtals­vert magn af ein­ó­mett­uðum fitu­sýrum og eru rík af mörgum vítamínum og stein­efnum. Með því að fella...
Borðar þú ofurfæðu?
Mannlífið

Borðar þú ofur­fæðu?

Hvað er ofur­fæða? Nær­ing­ar­lega séð er ekk­ert til sem heitir ofur­fæða. Hugtakið var búið til í mark­aðs­legum til­gangi til að hafa áhrif á mat­ar­þróun og selja vörur. Mat­væla­iðn­að­ur­inn gefur nær­ing­ar­ríkum mat­vælum ofur­fæðu­merkið en það eru mat­vælin sem geta haft jákvæð áhrif á heils­una. Þó að hægt sé að lýsa mörgum mat­vælum sem frá­bærum, þá er mik­il­vægt að gera sér grein...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður