„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fá „endalausar inngöngubeiðnir“ í brauðtertufélagið

„Það er svo­lítið retró að bjóða upp á brauðtertur,“ segir Erla Hlyns­dóttir, annar stofn­anda Brauðteru­fé­lags Erlu og Erlu. Félagið var stofnað í gríni um helg­ina til að auka veg brauðtertunnar.

Fá „endalausar inngöngubeiðnir“ í brauðtertufélagið
|Erla Gísla­dóttir

Vin­sældir hóps­ins eru gríð­ar­legar en um 150 með­limir gengu í hóp­inn strax fyrstu helg­ina.

Líflegar umræður hafa spunn­ist í hópnum um allar hliðar brauðtertu­gerðar og menn­ingar. Þannig mátti hóp­ur­inn taka afstöðu til stærri mála eins og hvort telja megi heita brauð­rétti með í virkni hins nýja félags.

Almennt virt­ust með­limir hóps­ins til­búin að halda heitum brauð­réttum með í starf­semi félags­ins. „Það er vantar eitt­hvað í fólk sem ekki elskar brauðtertur,“ segir einn með­limur hóps­ins. Þá má finna finna myndir af hefð­bundnum brauðtertum, hring­laga og jafn­vel risa­stórri tertu í formi krókó­díls í hópnum.

„Þetta byrj­aði bara sem grín sko hjá mér og Erlu Gísla­dóttur nöfnu minni,“ segir Erla og rekur hvernig hún las hjá vin­konu sinni á föstu­dags­kvöld að ekk­ert gengi að finna hóp á Facebook sem til­eink­aður er þessum mikla veislu­mat.

Erla Gísla­dóttir, brauðtertu­á­huga­kona, lífskúnstner og annar stofn­andi brauðtertu­hóps­ins.

„Ég grín­ast í henni að ef hún finni svona hóp þá vilji ég vera með í honum,“ segir Erla Hlyns­dóttir. „Hún svarar í gríni – eða þannig tek ég því – Já, tökum málið í okkar hendur og stofnun brauðtertu­fé­lagið. Ég er til, segi ég. Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu er stofnað á meðan við erum að spjalla. Ég tók mig til stofna bara hóp­inn og finn þessa fínu brauðtertu­mynd. Ég kalla þetta bara Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu sem mér finnst alveg frá­bært nafn. Síðan allt í einu er komið fullt af fólki. Ég sagði við Erlu að ég hefði haldið að það myndu kannski koma svona tíu manns. Síðan hafa bara komið enda­lausar inn­göngu­beiðnir.“

„Mér finnst maður ekki sjá þetta nógu oft í veislum.“

Erla segir með­limi hóps­ins aðal­lega vera að deila myndum enn sem komið er. – Erla segir klárt mál að brauðtertur séu að koma aftur. „Mér finnst maður ekki sjá þetta nógu oft í veislum. Það eru allir orðið með ein­hvern nútísku­mat,“ segir Erla og bætir við að þetta sé að breit­ast.

Sjálf hefur Erla ekki langt að sækka brauðtertu­eld­móð enda sé móðir hennar sé afar fær í gerð slíkra terta. „Hún starf­aði sem smur­brauðs­dama í Norræna hús­inu í gamla daga. Hún gerir rosa flottar brauðtertur á meðan ég er algjör ama­tör við hlið á henni.“

Mikla vin­sældir Brauðtertunnar kom stofn­endum á óvart. „Ef þetta eru við­tök­urnar. Fyrst fólk er svona áhuga­samt þá verðum við klár­lega að gera eitt­hvað meira úr þessu. Ég var til dæmis í fyrsta skiptið núna um helg­ina að lesa upp­skrift af ítal­skri brauðtertu þar sem eru sól­þurrk­aðir tómatar og beikon. Alls­konar sem ég hef bara ekki smakkað á brauðtertu áður,“ segir Erla spennt.

Erla Hlyns­dóttir starf­aði lengi sem blaða­kona en er í dag fram­kvæmda­stýra Pírata. Hún segir þennan klass­íska veislu­mat vin­sælan meðal flokks­manna. „Þær eru það nefni­lega. Í kosn­inga­bar­átt­unni núna í fyrra þá vorum við iðu­lega með brauðtertur á við­burðum hjá okkur. Ég bauð kosn­inga­stjór­anum þáver­andi og núver­andi upp­lýs­inga­stjóra flokks­ins að vera í hópnum.“

Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brauðtertur

Myndband: Skinkubrauðterta sem allir elska
Mannlífið

Myndband: Skinku­brauðterta sem allir elska

Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að við á Gest­gjaf­anum höfum verið í sann­köll­uðu brauðtertu­stuði und­an­farnar vikur, enda gott að henda í brauðtertur til að hvíla köku­átið en köku­blað Gest­gjafans var einmitt að koma í versl­anir. Þessi brauðterta er afar fersk og góð en samt nokkuð klass­ísk og því finnst eig­in­lega öllum hún góð. Brauðtert­una er afar auð­velt að gera eins og sést vel á mynd­band­inu sem fylgir með. Veði ykkur að góðu.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins