„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Slysaðist á heimsmeistaramót

Ólafía Kvaran byrj­aði að hlaupa hindr­un­ar­hlaup fyrir rúmu ári og hefur síðan tekið þátt í fjöl­mörgum keppnum í Spartan-hlaupi í Banda­ríkj­unum. Hún er komin í fremstu röð, varð fjórða í sínum ald­urs­flokki á heims­meist­ara­mót­inu í sumar, en hún er rétt að byrja.

Slysaðist á heimsmeistaramót
Mynd / Heiðdís Guðbjörg|||

„Ég hef alltaf verið í íþróttum,“ segir Ólafía. „Ég held ég sé búin að prófa allt. Lengst var ég í hand­bolta, fyrst með Aft­ur­eld­ingu og svo með Fram. Ég spil­aði líka með lands­lið­inu um tíma, held ég hafi náð að spila fjóra A-lands­leiki, en ég hætti þegar ég var 25 ára. Ég eign­að­ist elsta strák­inn minn 1994 og byrj­aði eitt­hvað að spila eftir það en hætti svo alveg.“

Ólafía er 48 ára gömul, á þrjá syni og er hjúkr­un­ar­fræð­ingur að mennt. Hún seg­ist reyndar alltaf nota tit­il­inn hjúkr­un­ar­kona þegar hún kynnir sig, henni finn­ist það miklu hlý­legra. Hún útskrif­að­ist 1996 og vann lengst af á slysa- og bráða­mót­tök­unni í Fossvogi en eftir nokk­urra ára dvöl erlendis hóf hún störf í Lækna­hús­inu árið 2008 og starfar þar enn.

„Þar er ég bara í dag­vinnu,“ útskýrir hún. „Það æxl­að­ist nefni­lega þannig að á meðan við bjuggum í Bret­landi, í rúm þrjú ár, var ég ekk­ert að vinna úti, var að sinna heim­il­inu og börn­unum. Maðurinn minn, Frið­leifur Frið­leifs­son, var að vinna þar fyrir Iceland Seafood og ferð­að­ist mjög mikið og þegar maður býr erlendis hefur maður nátt­úr­lega engan til að passa og hjálpa sér þannig að það var eig­in­lega ekki um annað að ræða. Svo æxl­uð­ust málin þannig að ég og strák­arnir fluttum heim einu og hálfu ári á undan honum og þá var auð­vitað ekki um það að ræða að ráða sig í vakta­vinnu, ein með þrjú börn, þannig að ég sem sagt réði mig í dag­vinnu í Lækna­hús­inu.“

Æfir fimm til sex sinnum í viku

Spurð hvort hún hafi ekki kunnað við sig í Bret­landi segir Ólafía að það hafi verið mjög þrosk­andi að búa erlendis og hún hafi haft mjög gott af því en hún og syn­irnir hafi öll verið sam­mála um að hafa dvöl­ina ekki lengri. Í Bret­landi hafði Ólafía byrjað að hlaupa til að halda sér í formi og hún hélt því áfram eftir að heim var komið og þá byrj­aði hún að sækja æfingar í Boot Camp.

„Þar er ég búin að æfa núna síð­ustu tíu árin,“ segir hún. „Og ég held ég hafi bara aldrei verið í eins góðu formi og ég er núna. Það liggur við að ég sjái eftir því að hafa ekki þekkt Boot Camp fyrr.“

Félags­skap­ur­inn og vin­áttan í Bootcamp er frá­bær sem er algjör­lega ómet­an­legt.

Beðin um að útskýra hvað þjálfunin í Boot Camp gengur út á er Ólafía snögg til svars. „Boot Camp er nátt­úr­lega bara nafnið á lík­ams­rækt­ar­stöð­inni,“ útskýrir hún. „En æfinga­kerfið sem þau vinna með gengur mikið út á að vinna með eigin lík­ams­þyngd, létta sand­poka eða ket­il­bjöllur og þetta eru alltaf góðir keyrslu­tímar í klukku­tíma í senn. Ofsalega fjöl­breytt og skemmti­legt æfinga­kerfi þar sem við æfum styrk, þrek, þol og úthald allt í bland. Enginn tími er eins og alltaf eitt­hvert óvænt „twist“ í boði, þetta og and­inn og stemm­ingin er það sem ég sæki í. Ég fer þangað tvisvar til þrisvar í viku en þar fyrir utan hleyp ég tvisvar í viku, fer í teygju­tíma og reyni að blanda öllu saman. Félags­skap­ur­inn og vin­áttan í Bootcamp er frá­bær sem er algjör­lega ómet­an­legt.“

Ég viðra þá skoðun mína að svona ströng æfinga­prógrömm virð­ast vera ávana­bind­andi og Ólafía sam­þykkir það með sem­ingi. En hvað er það sem fólk verður svona hel­tekið af?

„Ég er ekki hel­tekin af þessu,“ segir hún og hlær. „Ég er það heppin að ég hef aldrei þurft að glíma við aukakíló og slíkt þannig að ég er ekki að stunda lík­ams­rækt til þess að vera mjó. Ég fæ stundum þá spurn­ingu frá fólki sem þekkir mig ekki hvort þetta sé ekki bara megr­un­ar­að­ferð en ég er meira að stunda lík­ams­rækt til að vera í góðu formi og geta tek­ist á við allt sem mig langar til. Ef mig langar að prófa að kafa eða fara á kajak eða eitt­hvað slíkt þá veit ég að ég get það og mér finnst það mikið frelsi að hafa burði til að prófa allt.“

Ég hef aldrei þurft að glíma við aukakíló og slíkt þannig að ég er ekki að stunda lík­ams­rækt til þess að vera mjó.

Aldrei litið á sig sem hlaupara

Ólafía hefur keppt í þrek­móta­röð­inni í gegnum árin og fyrir nokkrum árum byrj­aði hún að hlaupa mara­þon og taka þátt í utan­vega- og hindr­un­ar­hlaupum um allan heim. Hvernig gerð­ist það?

„Eins og ég sagði þá byrj­aði ég að hlaupa meðan ég bjó í Bret­landi en ég hef aldrei litið á mig sem hlaupara þótt ég sé búin að hlaupa fimm mara­þon síðan 2011. Það byrj­aði í raun­inni, eins og allt sem ég byrja á, sem ein­hvers konar áskorun. Þá fór hópur úr Boot Camp og mað­ur­inn minn, sem er rosa­lega mik­ill hlaup­ari, í mara­þon í Berlín og ég ákvað að fara bara líka. Í mara­þon­heim­inum eru sex stór hlaup, sem kall­ast „the big six“, og um leið og við vorum búin með eitt mara­þon vorum við ákveðin í að fara í þau öll sex. Þá var áskor­unin hafin. Ég hef í raun­inni haldið mér í hlaupaformi með því að taka svona eitt mara­þon á ári. Þá fylgi ég hlaupa­prógrammi í átta til tíu vikur fyrir hlaup en þess á milli æfi ég bara eins og ég er vön.“

Ég spyr hvort þau hjónin hlaupi þá ekki mikið saman og það þykir Ólafíu óbæri­lega fyndin spurn­ing.

„Það halda það margir en það er mik­ill mis­skiln­ingur,“ segir hún. „Við æfum aldrei saman. Hann er miklu betri hlaup­ari en ég og ég á bara ekki séns á að hlaupa með honum. Við deilum auð­vitað áhug­anum á hlaupum og tölum heil­mikið um æfing­arnar og hvert við ætlum að hlaupa næst. En mér dettur ekki í hug að hlaupa með honum. Ég verð bara fúl yfir því hvað hann er miklu fljót­ari en ég ef ég geri það.“

Við deilum auð­vitað áhug­anum á hlaupum og tölum heil­mikið um æfing­arnar og hvert við ætlum að hlaupa næst.

Er þetta lífs­stíll sem öll fjöl­skyldan hefur til­einkað sér? Hugsiði mikið um það hvað þið borðið og hversu mikið þið hvílið ykkur og svo fram­vegis?

„Jaaa, við gerum það nú ekk­ert með­vitað,“ segir Ólafía. „Þegar maður var yngri gat maður bara borðað hvað sem var án þess að finna fyrir því, en með aldr­inum hef ég ómeð­vitað sneitt fram hjá alls konar mat sem ég veit að mér líður illa af. En að því sögðu þá borða ég sjúk­lega mikið og borða í raun­inni allt, en vissu­lega hefur matar­æðið breyst. Ég held það ger­ist bara ómeð­vitað þegar maður lærir á það hvað fer vel í mann og hvað ekki. Ég neita mér samt aldrei um neinn mat sem mig langar í.“

Ólafía er 48 ára gömul, móðir þriggja sona og hjúkr­un­ar­fræð­ingur að mennt. Und­an­farin ár hefur hún ratað í fréttir vegna frá­bærrar frammi­stöðu í hindr­un­ar­hlaupum á alþjóð­legum vett­vang.

Þannig að þessi íþrótta­iðkun og heil­brigði lífs­stíll eru ekki trú­ar­brögð fyrir þér?

„Nei, þetta snýst eig­in­lega bara um það hvað manni líður vel af þessu,“ segir Ólafía ákveðin. „Maður er kannski extra stilltur tveimur til þremur vikum fyrir stórar keppnir, en þetta eru alls ekki trú­ar­brögð. Manni verður að finn­ast þetta gaman.“

Hún við­ur­kennir þó að allt heim­il­is­lífið sé meira og minna und­ir­lagt af íþrótta­iðkun fjöl­skyld­unnar, syn­irnir stunda allir íþróttir og Ólafía segir löngu orðið von­laust mál að safna fjöl­skyld­unni saman á mat­máls­tímum og borða saman, það sé alltaf eitt­hvert þeirra á æfingu ein­hvers staðar og mjög sjald­gæft að þau séu öll heima á sama tíma.

Þetta eru alls ekki trú­ar­brögð. Manni verður að finn­ast þetta gaman.

„Allar reglur um fasta kvöld­mat­ar­tíma hafa hliðr­ast til eftir að strák­arnir urðu stærri,“ segir hún og hlær. „En við erum öll að gera það sem okkur finnst skemmti­leg­ast, svo það er ekki mikið mál.“

Krabbameinsgreiningin áskorun sem varð að taka

Árið 2015 komst Frið­leifur, eig­in­maður Ólafíu, í fréttir eftir að hafa lent í óút­skýrðu hjarta­stoppi í tvígang. Það stóð ekki á fólki að kenna hlaup­unum um, en enn hefur engin skýr­ing fund­ist. Fyrra hjarta­stoppið átti sér stað á heim­ili hjón­anna og Ólafía, sem er alvön aðstæðum sem þessum í sínu starfi, náði að bjarga honum með hjarta­hnoði.

„Hann er auð­vitað últra­hlaup­ari og þetta sumar, 2015, hafði hann verið að hlaupa mjög mikið,“ segir Ólafía.

„Við tókum meðal ann­ars þátt í áheita­verk­efni fyrir Útmeða nokkrum vikum fyrr þar sem hlaupið var hring­inn í um landið. Við vorum tíu manns í rútu og skipt­umst á um að hlaupa, en hann hljóp eðli­lega mjög mikið þá. Hafði líka hlaupið ell­efu ferðir í einu í Esju­hlaup­inu þetta sumar og eðli­lega héldu allir að hann hefði bara „hlaupið yfir sig“, það væri sko ekk­ert hollt og svo fram­vegis. En þrátt fyrir að vera rann­sak­aður í bak og fyrir fannst aldrei nein skýr­ing á þessu, þetta var bara eitt af þessum óút­skýrðu hjarta­stoppum. Það var strax settur í hann bjarg­ráður og þetta hefur aldrei gerst aftur.“

Þótt hjartað hafi ekki stoppað aftur var veik­inda­sögu Frið­leifs ekki þar með lokið. Í árs­byrjun 2018 greind­ist hann með ill­kynja krabba­mein sem hann hefur glímt við síðan.

Þrátt fyrir að vera rann­sak­aður í bak og fyrir fannst aldrei nein skýr­ing á þessu, þetta var bara eitt af þessum óút­skýrðu hjarta­stoppum.

„Hann hafði fundið hnúð á háls­inum í ein­hvern tíma en frestaði því að láta taka hann, enda var búið að stinga á þessu og úrskurða að það væri ekki hættu­legt en hann skyldi samt láta fjar­lægja það,“ útskýrir Ólafía.

„Í byrjun jan­úar fór hann svo í aðgerð og allt leit vel út, en svo þegar hann mætti í sauma­töku viku seinna var honum sagt að þetta væri ill­kynja krabba­mein og þá fór hið týpíska ferli í gang. Hann var sendur erlendis í jáeindaskanna og það fannst ein­hver pínu­lít­ill blettur í kok­inu og þá byrj­aði hann strax í „intens­í­vri“ geisla­með­ferð sem hann kláraði í vor og í eft­ir­liti núna í haust var hann úrskurð­aður krabba­meins­laus.“

Ólafía segir að vissu­lega hafi grein­ing eig­in­manns­ins verið áskorun sem þurfti að takast á við en hún hafi engu að síður ákveðið að halda sínu striki og æfa fyrir Spartan-hlaup í Banda­ríkj­unum.

Lenti fyrir tilviljun á heimsmeistaramóti

Ólafía segir að vissu­lega hafi grein­ing eig­in­manns­ins verið áskorun sem þurfti að takast á við en hún hafi engu að síður ákveðið að halda sínu striki og æfa fyrir Spartan-hlaup í Banda­ríkj­unum síð­asta sumar. Það ævin­týri byrj­aði reyndar hálf­part­inn óvart eins og hún full­yrðir að sé frekar regla en und­an­tekn­ing í hennar lífi.

„Árið 2017 bauðst mér og tveimur vinum mínum sem ég hef æft með í mörg ár að koma og keppa á heims­meist­ara­móti í Spartan-hlaupi í Lake Tahoe í Banda­ríkj­unum. Ég held að við höfum verið valin af því að sú sem for­svars­menn Spartan töl­uðu við til að fá íslenska þátt­tak­endur þekkti okkur öll og hafði æft með okkur, þannig að þetta kom í raun­inni til í gegnum tengsla­net og vin­skap. En alla­vega mættum við þarna til Lake Tahoe alveg blaut á bak við eyrun. Höfðum aldrei farið í Spartan-hlaup og höfðum ekki einu sinni vitað af þessu hlaupi fyrr en fjórum til fimm vikum áður en mótið hófst. Þetta var samt sjúk­lega spenn­andi og gaman og við kepptum í tvo daga.

Þetta kom í raun­inni til í gegnum tengsla­net og vin­skap.

Annan dag­inn hlupum við sem ein­stak­lingar ein­hverja 29 kíló­metra í fjöll­unum þarna og yfir fullt af hindr­unum. Seinni dag­inn kepptum við fyrir hönd Íslands í liða­keppni. Svo kom maður í mark, hafði aldrei gert þetta áður, en var samt sam­keppn­is­hæfur við hitt fólkið sem hafði gert þetta árum saman og var búið að vinna sér inn rétt til þátt­töku á heims­meist­ara­móti. Þarna kvikn­aði ein­hver neisti og ég fann að ég vildi gera meira af þessu þannig að fljót­lega eftir þetta fór ég að tala um að fara að æfa Spartan-hlaup og reyna að kom­ast á fleiri mót. Þetta var svo skemmti­legt.“

Ólafía skráði sig í Spartan-hlaup í Boston í mars og gekk svo vel að hún fann að ekki varð aftur snúið.

„Ég end­aði þarna í þriðja sæti í mínum ald­urs­flokki og vann mér þar með inn rétt til að taka þátt í meist­ara­keppni Norður-Ameríku í ágúst. Þannig að ég var strax komin með annað hlaup til þess að stefna að. Frá því í mars og fram í ágúst heyrði ég í ýmsum vinum mínum um það hvort þeir vildu kannski prófa að koma með og það voru allir mjög spenntir.

Við mað­ur­inn minn vorum búin að bóka ferð til Dallas í októ­ber til að fara á tón­leika og ég ætl­aði nátt­úr­lega að fara í eitt Spartan-hlaup í leið­inni. Þegar ég fór að segja fólki frá því heyrði ég strax að það var gríð­ar­legur áhugi á að prófa þetta. Það vatt svo upp á sig þannig að ég fór og tal­aði við Vita-ferðir um hvort þeir gætu sett saman pakka fyrir mig fyrir þá sem hefðu áhuga á að koma. Ég setti svo aug­lýs­ingu í bundnu máli inn á Facebook-síðu Boot Camp á fimmtu­degi og ferðin var upp­seld strax eftir helg­ina. Það end­aði með því að við vorum fimm­tíu og fimm manns frá Íslandi sem mættum í þetta hlaup. Það var rosa­lega gaman.“

Engin leið að hætta

Eftir að hafa fundið fyrir þessum gríð­ar­lega áhuga á Spartan-hlaupum hjá Íslend­ingum ákvað Ólafía að fara á þjálf­ara­nám­skeið hjá Spartan í New York í lok apríl og er sem sagt komin með Spartan-þjálf­ara­rétt­indi, sú eina á Íslandi sem ber þann þjálf­ara­titil. Ekki nóg með það heldur skellti hún sér á fram­halds­nám­skeið í byrjun ágúst og lauk því með glæsi­brag. En ævin­týrið var rétt að byrja.

„Þarna var loks­ins komið að meist­ara­móti Norður-Ameríku sem ég hafði áunnið mér rétt til að taka þátt í,“ segir hún og það er auð­heyrt að þessi hlaup eiga hug hennar allan.

„Það var í lok ágúst í West-Virginia og ég var eig­in­lega ákveðin í því að það yrði lík­lega síð­asta hlaupið sem ég tæki þátt í enda mjög sátt við árang­ur­inn minn að ná inn á þetta mót. Svo gekk mér bara svo rosa­lega vel á þessu móti, lenti í fimmta sæti í mínum ald­urs­flokki og með því var ég komin með þátt­töku­rétt á heims­meist­ara­mót­inu, svo það kom auð­vitað ekki til greina að hætta þarna,“ segir hún og skelli­hlær.

„Heims­meist­ara­mótið var svo haldið í Lake Tahoe mán­uði seinna, í lok sept­em­ber, og þar lenti ég í fjórða sæti í mínum ald­urs­flokki. Þannig að ég er hrika­lega ánægð með hvað þetta eina hlaup sem ég ætl­aði að prófa þarna í mars hefur leitt mig út í. Ég verð að við­ur­kenna að þótt ég hafi sagt áðan að ég væri ekk­ert hel­tekin þá eru þessi hlaup sjúk­lega ávana­bind­andi og engin leið að hætta.“

Ég verð að við­ur­kenna að þótt ég hafi sagt áðan að ég væri ekk­ert hel­tekin þá eru þessi hlaup sjúk­lega ávana­bind­andi.

Ólafía lætur sér þó ekki nægja að hlaupa sjálf. Eftir mót­tök­urnar sem hóp­ferðin til Dallas fékk dreif hún í því að koma á fót nám­skeiðum í Spartan-hlaupum þar sem hún er með Spartan-þjálf­ara­rétt­indi og þó nokkur fjöldi Íslend­inga tók þátt í Spartan-hlaup­inu sem haldið var hér­lendis í des­em­ber. Ólafía gengst við því að það sé kannski aðal­lega hennar áhugi sem hafi komið þess­ari hreyf­ingu af stað, hún sé búin að smita ansi marga af Spartan-bakt­er­í­unni enda valin af Spartan til að vera full­trúi þeirra á Íslandi. En hvað er það helsta sem upp­götvun Spartan-hlaupanna hefur kennt henni sjálfri?

„Það er svo margt,“ segir hún hugsi. „Þetta hefur verið óskap­lega lær­dóms­ríkt og þrosk­andi. Ég var ekki vön að ferð­ast svona mikið ein og alls ekki vön að standa fyrir framan fólk, stjórna æfingum og tjá mig. Þannig að ég hef haft mjög gott af þessu og þetta hefur styrkt mig í þeirri trú að maður geti það sem maður ætlar sér ef mann virki­lega langar til þess og leggur hart að sér.“

Árið 2019 undirlagt af Spartan

Svona í upp­hafi árs er við hæfi að enda við­talið á hinni hefð­bundnu spurn­ingu um hvort Ólafía hafi strengt ára­móta­heit og í hverju það felist þá.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

„Ég strengi aldrei ára­móta­heit,“ segir hún ákveðin. „En það þýðir ekki að það sé ekki ýmis­legt fram undan á nýja árinu. Ég er núna að skipu­leggja næstu ferðir á Spartan-hlaup og stefnan er að fara bæði vor- og haust­ferð. Þátt­tak­endur koma auð­vitað aðal­lega úr Boot Camp-hópnum en það eru svo sann­ar­lega allir vel­komnir. Fólk heldur kannski að það þurfi að vera í ein­hverju ofur­formi til að geta tekið þátt í svona hlaupum en ég held því fram að það geti þetta allir, með því að gera það á eigin for­sendum. Það þurfa ekk­ert allir að keppa eins og ég hef verið að gera.

Meiri­hlut­inn af iðk­endum Spartan-hlaupa gerir þetta bara sér til gam­ans og heilsu­bótar og ég er sem sagt að vinna í því núna að setja saman þessar ferðir. Svo ætla ég per­sónu­lega að sjálf­sögðu líka að hlaupa eitt­hvað og keppa. Ég þarf til dæmis auð­vitað að keppa aftur á heims­meist­ara­mót­inu næsta sumar. Spartan-hlaupa­daga­talið fyrir árið er reyndar nýkomið út þannig að ég er ekki búin að negla niður ákveðin hlaup en ég mun svo sann­ar­lega hlaupa á nýja árinu. Stefnan er að árið 2019 verði algjör­lega und­ir­lagt af Spartan!“

Þú hljómar mjög ákveðin í að ná árangri, ertu sem sagt mikil keppn­is­mann­eskja?

„Já, ég er keppn­is­mann­eskja,“ segir Ólafía og glottir. „Ég þarf ekk­ert endi­lega að vinna en ég þrífst svo­lítið á því að keppa við aðra og standa mig vel. Ég alla­vega geri alltaf mitt besta og það dugar mér að vita það sjálf.“

Það er nokkuð ljóst að við höfum ekki heyrt það síð­asta frá Ólafíu sem keppn­is­mann­eskju í Spartan og það verður spenn­andi að fylgj­ast með afrekum hennar á nýja árinu.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Helga Sæunn Þor­kels­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Lancôme

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins