„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Megrunarskilaboðin eru bara ekki að virka“

Margt fólk setur sér mark­mið um ára­mótin og ætlar sér að verða betri útgáfa af sjálfum sér á nýju ári. Markmið sem snúa að heils­unni, matar­æði og hreyf­ingu eru algeng en Gréta Jak­obs­dóttir, nær­ing­ar­fræð­ingur í Heilsu­borg, mælir með að fólk fari ekki of geyst af stað.

Gréta hefur reynslu af því að aðstoða fólk við að eiga í betra og heil­brigðu sam­bandi við mat. Hún mælir gegn því að ætla sér að sleppa alfarið ákveðnum fæðu­teg­undum því það verður gjarnan til þess að fólk myndar slæmt sam­band við mat sem jafn­vel geti þró­ast í ofát eða ofát­sköst að sögn Grétu.

„Fólk er oft rosa­lega týnt í þessum málum enda eru alltaf að koma upp ein­hverjar nýjar „reglur“ sem rugla fólk,“ segir Gréta sem tekur fram að hún er alls ekki hrifin af skyndi­lausnum, megr­un­art­öflum og dufti.

„Það er algengt að fólk vilji breyta miklu um ára­mótin og setur sér því óraun­hæf mark­mið. Það ætlar að taka allt í gegn bara vegna þess að það er komið nýtt ár. En í raun er ártalið það eina sem hefur breyst,“ segir Gréta.

Þyngdin segir ekki allt. Fólk á frekar að hreyfa sig til að líða vel í stað þess að fók­usera á til dæmis maga­vöðvana.

„Ég hvet fólk frekar til að spyrja sig af hverju það vill breyta ein­hverju og hvernig. Ekki hugsa bara út í að breyta útlit­inu drastískt. Og ekki ein­blína á ein­hverja tölu á vigt­inni. Sú tala gefur alls ekki skýra mynd af hvernig heilsu­fars­legu ástandi við erum í,“ útskýrir Gréta sem mælir ein­dregið gegn því að fólk setji sér þyngd­ar­tengd mark­mið.

„Þyngdin segir ekki allt. Fólk á frekar að hreyfa sig til að líða vel í stað þess að fók­usera á til dæmis maga­vöðvana. Megr­un­ar­skila­boðin eru bara ekki að virka.“

Heimurinn hrynur ekki ef þú missir af æfingu

„Annað sem er gott að hugsa út í eru þau atriði sem geta staðið í vegi fyrir manni. Til dæmis hvað ætlar þú að gera ef að barnið þitt veik­ist eða þú þarft að skila skýrslu í vinn­unni eða læra fyrir próf í skól­anum? Hvað gerir þú þegar hið full­komna plan er ekki til staðar, eins og er nú sjaldn­ast. Getur þú þá kannski gert eitt­hvað annað í stað­inn? Heim­ur­inn hrynur ekk­ert þó að þú missir af einni æfingu, en auð­vitað villt þú ekk­ert að það end­ur­taki sig oft,“ segir Gréta.

Þegar maður ætlar sér að hætta algjör­lega í ein­hverju ákveðnu þá er lík­legt að mann langi enn meira í það.

„Hvað matar­æðið varðar þá mæli ég einnig gegn því að fólk sökkvi sér í of miklar breyt­ingar þar. Það kemur lík­lega í and­litið á manni seinna. Við erum vana­verur og það þarf að bera virð­ingu fyrir því og fara hægt og rólega í breyt­ingar. Til dæmis er hægt að auka magn græn­metis í hádeg­inu og á kvöldin og stefna á að eitt milli­mál yfir dag­inn sé ávöxtur. Jafn­framt drekka vatn með matnum frekar en aðra drykki,“ útskýrir Gréta.

Að hennar mati er ekki skyn­sam­legt að ætla sér að taka út allan sykur eða hveiti sem dæmi. „Þegar maður ætlar sér að hætta algjör­lega í ein­hverju ákveðnu þá er lík­legt að mann langi enn meira í það,“ segir Gréta. Að lokum minnir hún á að lyk­ill­inn að góðri heilsu er góður svefn. „Ef maður ætlar út í ein­hverjar breyt­ingar þá er mik­il­vægt að sofa vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mataræði

Þetta borðar Hailey Bieber
Mannlífið

Þetta borðar Hailey Bieber

Mataræði Hailey Bieber Hin 25 ára gamla Hailey Bieber byrj­aði fyr­ir­sætu­fer­il­inn aðeins 17 ára gömul og hefur setið fyrir í mörgum af þekkt­ustu tísku­tíma­ritum heims. Hailey hefur unnið fyrir tískurisa á borð við Ralph Lauren og Tommy Hilfiger en hefur hún einnig verið mikið í sviðs­ljós­inu vegna eig­in­manns­ins, popp­stjörn­unnar Justin Bieber. Hailey leggur mikla áherslu á hollt og nær­inga­ríkt matar­æði...
Þetta borðar hin síunga Jennifer Aniston alla daga
Menning

Þetta borðar hin síunga Jennifer Aniston alla daga

Hollywood leik­konan Jennifer Aniston(52) er ein þeirra stjarna sem virð­ist ein­fald­lega ekki eld­ast. Unglegt útlit leikkon­unnar hefur verið umtalað í mörg ár og fólk velt því fyrir sér hver leynd­ar­dóm­ur­inn sé. Jennifer leysti frá skjóð­unni í við­tali við Elle og sagði frá matar­æði sínu yfir dag­inn. Gull­fal­leg­Mynd: Jon Kopaloff / FilmMagic Í morg­un­mat seg­ist Jennifer byrja dag­inn á að drekka...
„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tvítug”
Viðtal

„Ég er í betra formi núna en þegar ég var tví­tug”

Gyða Dís jóga­kenn­ari breytti alger­lega um stefnu fyrir um 20 árum en áður hélt hún sér gang­andi með gosi og súkkulaði. Síðasta ára­tug­inn hefur hún svo gengið skref­inu lengra með því að vera 90 pró­sent á hrá­fæði. „Þrátt fyrir almennt heil­brigt líf­erni er það engin til­viljun að ég umbreytti lífs­háttum mínum fyrir tutt­ugu árum. Ég á þrjá syni ásamt eig­in­manni...
Fólk

„Ættu að hugsa sinn gang alvar­lega“

Einka­þjálf­ar­inn Björn Þór Sig­ur­björns­son segir allt eða ekk­ert-hug­ar­farið stór­hættu­legt, þar sem fólk ætli sér stóra hluti strax frá byrjun og taka matar­æðið og hreyf­ing­una föstum tökum af mik­ill ákefð. „Það er eig­in­lega dæmt til að springa í and­litið á okkur með þeim afleið­ingum að við hættum,“ segir Björn. „Ef þú hefur getu og tíma til þess að mæta sex sinnum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins