„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kartöflu-blaðlauksbaka

Bökur eru þægi­legur og góður matur. Þær er ein­falt að búa til og þegar deigið hefur verið gert eru engin tak­mörk fyrir hvað nota má í fyll­ingu. Hægt er að grípa það sem til er í ísskápnum og þetta er því góð leið til að nýta afganga, græn­meti sem er á síð­asta snún­ingi eða hvað annað sem leyn­ast kann í mat­ar­skápum heim­il­is­ins. Hér kemur ein góð baka.

Kartöflu-blaðlauksbaka

Ósætt bökudeig

180 g hveiti
½ tsk. salt
100 g kalt smjör í bitum
¾ dl ískalt vatn

Hitið ofn­inn í 180°C. Setjið hveitið í rúm­góða skál, bætið salti í og myljið smjörið saman við þar til það er eins og smáar baunir.

Gerið laut í hveitið og setjið vatn þar í og hnoðið létt saman þar til deigið hefur sam­lag­ast. Pakkið deig­inu í plast­filmu og geymið í ísskáp í 15 mín. Einnig má laga deigið í mat­vinnslu­vél.

Þá er allt nema vatn sett í vél­ina og hún stillt á mesta hraða í 10 sek. Vatni bætt í og hrært saman í 30 sek., eða þar til deigið hefur sam­lag­ast.

Ef deigið vill ekki sam­lag­ast í kúlu í vél­inni er ágætt að hvolfa deig­inu á borðið og hnoða það létt saman í höndum í lokin. Það er betra en að láta vél­ina vinna lengi áfram því þá eyði­leggj­ast smjör­mol­arnir.

Geymið deigið í 10-15 mín. í ísskáp. Fletjið það út og setjið í form. Pikkið í botn­inn með gaffli og for­bakið böku­skel­ina í 10-15 mín.

Það má gjarnan kæla deigið í ísskáp í sól­ar­hring áður en það er notað en þá er gott að láta það bíða við stofu­hita í 15 mín. áður en það er flatt út.

Deigið má frysta í 3 mán­uði.

Kartöflu-blað­lauks­baka
fyrir 6-8

1 for­bökuð böku­skel
300 g nýjar kart­öflur
3 blað­laukar
2 msk. olía
1 msk. smjör
1-2 hvít­lauks­rif (má sleppa)
2 egg
1 eggjarauða
2 ½ dl mat­reiðsl­urjómi
2-3 msk. parmesa­nostur
1 msk. ferskt tímían
salt og nýmal­aður pipar
2 msk. parmesa­nostur til að dreifa yfir

Hitið ofn­inn í 180°C. Sjóðið kart­öfl­urnar í salt­vatni. Skerið blað­lauk í sneiðar og steikið í blöndu af olíu og smjöri þar til hann er mjúkur, bætið hvít­lauk út í í rest­ina ef þið notið hann.

Sláið saman egg, eggjar­auðu, mat­reiðsl­urjóma, ost og tímían í skál.

Skerið kart­öfl­urnar í sneiðar og bætið út í ásamt lauk­blönd­unni og saltið og piprið. Hellið fyll­ing­unni í for­bak­aða skel­ina, dreifið osti yfir og bakið í 30-35 mín., eða þar til fyll­ingin er stíf.

Góð ráð

Fletjið deigið út á hveitist­ráðu borði. Ef þið lendið í vand­ræðum og deigið molnar allt í sundur er það lík­lega búið að bíða of lengi í kæli.

Ef erfitt er að móta kringlótta köku og hún fest­ist við borðið er deigið senni­lega ekki búið að kólna nóg í kæli­skápnum, þá er bara að æfa sig og finna takt­inn.

Fletjið deigið alltaf út frá miðj­unni og snúið því nokkrum sinnum á meðan og stráið smá­vegis hveiti undir og yfir.

Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður