„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dýrindis drottningarterta

Svamp­botnar, rjómi, sulta og jarð­ar­ber blanda sem getur ekki klikkað.

Dýrindis drottningarterta
garð­veisla

Terta þessi er nefnd eftir Viktoríu Breta­drottn­ingu sem var mikið fyrir svamp­botna­tertur sem hún naut með eft­ir­mið­dag­steinu. Botn­arnir eiga rætur sínar að rekja til klass­ískrar form­köku en nýj­ungin í upp­skrift­inni var lyfti­duft sem fundið var upp í Bret­landi á valda­tíma hennar og gerði botn­ana hærri og loft­kennd­ari. Vikt­or­íutertur eru klass­ískar í ýmsum boðum hjá Eng­lend­ingum og því ekki úr vegi að bjóða upp á eina slíka með hækk­andi sól.

Terta Viktoríu drottningar
10-12 sneiðar

Hvítsúkkulaðirjómi

  • 80 g hvítt súkkulaði
  • 200 ml rjómi

Saxið súkkulaðið og setjið í með­al­stóra skál. Hellið 80 ml af rjóm­anum í pott og setjið yfir með­al­háan hita. Fylgist vel með rjóm­anum og þegar fyrstu loft­bólurnar fara að koma upp er heita rjóm­anum hellt yfir súkkulaðið. Látið standa í 3 mín. og hrærið allt síðan vel saman til að bræða súkkulaðið. Hyljið og setjið inn í kæli í a.m.k. 1 klst. Þegar botn­arnir eru til­búnir og búnir að kólna, þeytið þá afgang­inn af rjóm­anum saman við súkkulaði­blönd­una þar til mjúkir toppar mynd­ast (passið vel að ofþeyta ekki rjómann).

Hveitið er sigtað þrisvar sinnum alls í þess­ari upp­skrift, þetta gerir hveitið loft­meira og lyftir botn­unum meira.2

Botnar

  • 225 g smjör, mjúkt
  • 225 g sykur
  • 1 tsk. vanillu­dropar
  • 4 egg
  • 225 g hveiti
  • 3½ tsk. lyfti­duft
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. mjólk

Hitið ofn í 170°C. Smyrjið tvö 20 cm hring­laga smellu­form og klippið til bök­un­ar­pappír til að leggja í botn­ana. Sigtið hveiti, lyfti­duft og salt í skál, sigtið síðan aftur og setjið til hliðar. Þeytið saman smjör og sykur þar til blandan verður ljós og loft­kennd.

Þeytið eggin saman við, eitt í einu, og passið að allt bland­ist vel saman. Þeytið vanillu­dropana saman við. Sigtið hveiti­blönd­una ofan í hræri­vél­ar­skál­ina og notið hæg­ustu still­ing­una til að blanda öllu rétt svo saman.

Klárið að blanda saman með sleikju og hrærið síðan mjólk­ina saman við ef deigið er mjög þykkt. Skiptið deig­inu á milli for­manna og bakið inni í ofni í 20-25 mín. eða þar til köku­prjónn kemur hreinn út þegar honum er stungið í miðju botn­anna.

Leyfið botn­unum að kólna í 5 mín. á grind áður en formunum er smellt af. Látið kólna alveg áður en kakan er sett saman. Geyma má botn­ana vand­lega inn­pökk­uðum í plast­filmu í kæli í allt að 3 daga.

Jarðarberjasulta

Einnig má nota til­búna jarð­ar­berja­sultu.

  • 200 g jarð­ar­ber, söxuð
  • 60 g sykur
  • 1 tsk. sítrónu­safi

Setjið allt saman í pott og náið upp suðu, lækkið hit­ann og eldið í 5 mín. eða þar til syk­ur­inn hefur leyst upp og blandan hefur þykknað. Setjið til hliðar og látið kólna.

Samsetning

  • 100 g jarð­ar­ber, sneidd
  • 20 g flór­sykur

Leggið annan botn­inn ofan á köku­disk og smyrjið jarð­ar­berja­sult­unni yfir botn­inn. Notið skeið til að dreifa helm­ingnum af hvítsúkkulaðirjóm­anum yfir. Raðið sneiddu jarð­ar­berj­unum yfir og notið skeið til að dreifa afgang­inum af rjóm­anum yfir. Leggið hinn botn­inn ofan á og sigtið flór­sykur yfir kök­una. Berið kök­una fram sam­dæg­urs, því nær sam­setn­ingu því betra því rjóm­inn fer að leka þegar kakan er látin standa lengi.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður