Á morgun kemur í verslanir Gestgjafablaðið Bestu uppskriftirnar 2019. Blaðið er 162 síður og stútfullt af uppskriftum af öllum þeim bestu réttum sem Gestgjafinn reiddi fram á þessu ári í bland við nýjar uppskriftir.
Spennandi smáréttir, gómsætir aðalréttir, grænmetisrétti, súpur, salöt, kökur og kokteilar er dæmi um það sem má finna í þessu glæsilega blaði.

Í blaðinu er að finna þátt um hátíðarbröns. Í þættinum er uppskrift að m.a. þessum grilluðum paprikum og pestó með eggi.

Í nýja blaðinu finnur þú uppskrift að þessu bakaða eggaldini með chipotle, jógúrt og ristuðum fræjum.

Lesendur fá að skyggnast bak við tjöldin.

Uppskrift að appelsínu-sangríu er að finna í nýja blaðinu.
Þetta og svo miklu meira í nýja blaðinu.





















Athugasemdir