„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hrikalega góð hreindýralund með rauðvínssósu og steinseljurótarmús

Hrikalega góð hreindýralund með rauðvínssósu og steinseljurótarmús
12. tbl 2018, Bergþóra Jóns­dóttir, Birtíngur, Gest­gjaf­inn, Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir, Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir, jóla­kjöt, jóla­legir kjöt­réttir, jólasteik, kjöt­réttir, kjöt­réttur, Nanna Teits­dóttir, GE1811029280

Hreindýr er hreint lost­æti og því frá­bær jóla­matur hvort sem er á aðfanga­dag eða aðra hátíð­ar­daga. Hrein­dýra­kjöt er fremur auð­velt að með­höndla og elda og villi­bragðið gerir það mjög hátíð­legt og spenn­andi kost. Meðlætið er ekki síður mik­il­vægt en rót­ar­græn­meti passar t.d. vel með því og svo er alltaf gott að hafa eitt­hvað grænt eins og baunir eða brokk­ólí. Sósan er líka mik­il­væg eins og alltaf hjá Íslend­ingum. 

Hér er upp­skrift að dásam­legri hrein­dýra­mál­tíð þar sem með­lætið er stein­selju­rót­ar­mús með trufflu­olíu og strengja­baunum í bals­amediki. Góð hein­dýra­lund ætti að bráðna í munni og hér er hún borin fram með rauð­víns­sósu. Auðvitað er hægt að bara annað með­læti fram með steik­inni.

Hreindýralund

1 hrein­dýra­lund
2 msk. olía
salt og pipar eftir smekk

Hitið ofn­inn í 200°C. Saltið og piprið steik­ina og steikið á báðum hliðum við háan hita, 2 mín. á hvorri hlið. Setjið í ofn­inn í 6-7 mín. Látið hvíla í nokkrar mín­útur áður en steikin er skorin.

Rauðvínssósa

5 stk. beikon, skorið gróft
2 stk. skalot­laukur
2 dl rauð­vín
bals­amedik
300 ml villi­bráð­ar­soð
1 msk. korn­sterkja, blönduð saman
við 2 msk. vatn
2 msk. smjör

Steikið beikon og lauk saman á pönnu þar til beikonið er orðið stökkt. Hellið þá soði, rauð­víni og bals­amediki út á pönn­una. Látið sjóða niður um helm­ing. Sigtið lauk og beikon frá og þykkið með korn­sterkj­unni. Smakkið til með villi­bráð­ar­kryddi og rauð­víni.

Setjið að síð­ustu smjör út í sós­una áður en hún er borin fram.

Steinseljurótarmús með truffluolíu

700 g stein­selju­rót, afhýdd og
skorin í grófa bita
50 g smjör
salt og pipar
100 g rjóma­ostur
2 msk. trufflu­olía

Sjóðið stein­seljurót­ina, hellið vatn­inu af og setjið í mat­vinnslu­vél ásamt
öllum öðrum inni­halds­efnum. Smakkið til með salti og pipar. Skiljið 1 msk. eftir af trufflu­ol­í­unni og dreypið yfir áður en músin er fram­reidd.

Strengjabaunir í balsamikediki

app­el­sínu­djús
granatepla­djús (pomegr­anate-djús)
3 msk. smjör
2 msk. bals­amedik
1 msk. hlynsíróp (maple)
2 tsk. rif­inn app­el­sínu­börkur
1 hvít­lauks­rif, maukað
salt og pipar
3-4 msk. trönu­ber

Gufu­sjóðið baun­irnar í 8-10 mín. eða látið í pott og rétt látið suð­una koma
upp. Blandið öllu hinu saman á pönnu og setjið svo baun­irnar saman við. Látið malla í nokkrar mín­útur. Gott með nauta­kjöt­inu og hrein­dýr­inu.

Umsjón / Bergþóra Jóns­dóttir og Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppskirftir

Notalegur vetrarmatur og fullkomnar vatnsdeigsbollur
Mannlífið

Nota­legur vetr­ar­matur og full­komnar vatns­deigs­bollur

Í nýjasta tölu­blaði Gest­gjafans er lögð áhersla á allt sem gefur yl í kropp­inn, svo­kall­aðan „comfort food“ enda kuld­inn og lægð­irnar í algleym­ingi þessa dag­ana. Pott­réttir, bökur og súpur eru meðal upp­skrifta og að sjálf­sögðu gamla góða rjóma­bollan enda bollu­dag­ur­inn á næsta leyti. Fátt er betra en matur sem eld­aður er frá grunni í einum potti þar sem fram­andi krydd...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður