„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég hlýt að fara á góða staðinn þegar ég dey“

Olga Björt Þórð­ar­dóttir, útgef­andi og rit­stjóri bæj­ar­mið­ils­ins Hafn­firð­ings, ljóstrar hér upp fimm stað­reyndum um sjálfa sig.

„Ég hlýt að fara á góða staðinn þegar ég dey“
Mynd / Aldís Páls­dóttir

*„Einn stór draumur minn er að enda sem háöldruð kona og list­mál­ari í fjalla­kofa í ein­hverju vín­ekru­hér­aði á Ítalíu. Þar vil ég taka á móti skemmti­legu fólki og ætla að kapp­kosta að vera sjálf hraust, jákvæð og skemmti­leg svo það komi sem flestir að heim­sækja mig.“

*„Ég er algjört jólafrík og vil helst hlusta á jóla­lög frá sept­em­ber og fram í febr­úar. Valin jóla­lög kalla fram góða til­finn­ingu tengda æsk­unni í Njarðvík. Ef maður lætur ekki allt áreitið sem fylgir aðvent­unni fara í taug­arnar á sér, þá finnst mér þetta besti tími árs­ins. Lang­flest fólk verður ein­hvern veg­inn besta útgáfan af sér, faðmar, hrósar og brosir meira og brjálast úr kær­leika. Þetta er líka geggj­aður kósí­tími við kerta­ljós með kakó og pip­ar­kökur.“

*„Elsku tví­bura­bróðir minn, Kristján Ingi, er 20 mín­útum yngri en ég. Það mun­aði bara 46 mín­útum að við fædd­umst hvor á sínum deg­inum. Við áttum það til sem börn að dreyma sama draum­inn sömu nótt­ina og áttum marga sam­eig­in­lega vini. Mér finnst for­rétt­indi að vera tví­buri en það er alltaf jafns­kondið þegar fólk spyr okkur hvort við séum ein­eggja eða tví­eggja. Ég held að það sé bara eitt­hvað ósjálfrátt og að fólk hugsi ekki lengra.“

*„Ég er virkur blóð­gjafi því fyr­ir­myndin faðir minn tók mig stundum með í Blóð­bank­ann þegar hann gaf. Hann var fyrstur Íslend­inga til að gefa 100 sinnum blóð árið 1992. Og ég er ekki hrædd við sprautu­nálar vegna þess að hann sýndi mér fram á að þetta væri ekk­ert mál. Ég er skáti og var í fyrstu stjórn Björg­un­ar­sveit­ar­innar Suðurnes. Já og svo er ég í stjórn Bind­ind­is­fé­lags öku­manna, Braut­inni. Ég hlýt að fara á góða stað­inn þegar ég dey … hahaha.“

*„Ég elska karl­menn með skegg og úfið hár. Og sem líður vel í eigin skinni, hafa húmor fyrir líf­inu og eru femínistar og stoltir af því. Það er sexí! Já, ég veit um marga frá­bæra sem þessi skil­grein­ing passar við.“

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fimm staðreyndir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins