„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tobba líkir sorginni við teygju: „Það er ekkert hægt að mæla sorg í mánuðum eða árum“

Í opin­skáu for­síðu­við­tali við Mannlíf talar Tobba Marinós um systur sína sem lést árið 2016. Tobba segir jólin erf­iðan tíma fyrir fjöl­skyldur sem eru í sorg og hennar fjöl­skyldu enga und­an­tekn­ingu frá þeirri reglu.

Tobba líkir sorginni við teygju: „Það er ekkert hægt að mæla sorg í mánuðum eða árum“
Tobba Marinós Mynd / Hallur Karlsson

„Við vorum fjögur systk­inin,“ segir hún og það dimmir dálítið yfir henni. „Ég á bróður sem er þremur árum eldri en ég og litla systur sem er 25 ára og býr í Bret­landi. Ég er einmitt að flytja hana inn í þess­ari viku svo hún geti passað börnin á meðan við mamma erum hérna í granóla­fram­leiðsl­unni því ég er auð­vitað bara eins og sjó­manns­kona í des­em­ber. Ég átti eina systur í við­bót, Regínu, sem var næstyngst, en hún lést í maí 2016.“

Það er auð­heyrt að Tobba á erfitt með að tala um dauða systur sinnar, en hún varð bráð­kvödd á heim­ili for­eldra þeirra og það var Tobba sem kom að henni.

„Ég er eig­in­lega ekki komin á þann stað að geta rætt það,“ segir hún hrein­skiln­is­lega. „Þetta er eitt­hvað sem maður er enn þá að vinna úr og langt í það að ég geti mikið rætt það. En ég get sagt að síðan hún dó er lífið verra og verður verra og maður sjálfur verri. Það er eig­in­lega engin leið til að lýsa því, þetta er bara svart­hol. Sumir dagar ganga betur en aðrir en stundum er maður alveg ónýtur. Mér finnst svo skrýtið hvað fólk virð­ist eiga erfitt með að skilja það. Ekkert mjög löngu eftir að systir mín dó var fólk farið að spyrja hvort mamma og pabbi væru eitt­hvað að koma til. Eins og þau hefðu fengið flensu. Það er alveg sturlað.“

Jólin eru erf­iður tími fyrir fjöl­skyldur sem eru í sorg og Tobba segir sína fjöl­skyldu enga und­an­tekn­ingu frá þeirri reglu.

„Besta útskýr­ingin sem ég hef séð á sorg var þegar Nick Cave, sem missti son sinn í hræði­legu slysi, sagði í við­tali að sorgin væri eins og teygja,“

segir hún. „Teygjan gefur mis­mikið eftir, stundum finnst manni að manni gangi bara ágæt­lega að díla við þetta og að nú sé maður kom­inn yfir erf­ið­asta hjall­ann, en svo er manni kippt til baka á byrj­un­ar­reit. Það er ekk­ert hægt að mæla sorg í mán­uðum eða árum. Ég hef farið í sál­fræði­með­ferðir og svo fram­vegis og reynt að stytta mér leið eins og hægt er, en það virkar ekki. For­eldrar mínir hafa staðið sig ótrú­lega vel og við reynum öll að hjálp­ast að við að kom­ast í gegnum þetta, ekki síst á þessum tíma í kringum jólin.“

Tobba prýðir for­síðu nýjasta Mannlífs.

Lestu við­talið við Tobbu í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Mynd / Hallur Karlsson
Förðun / Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins