„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Klassískur réttur – Boeuf Bourgignon

Boeuf Bourgignon er klass­ísk frönsk upp­skrift þar sem nauta­kjöt er soðið með rauð­víni og græn­meti.

Klassískur réttur – Boeuf Bourgignon

Fyrsta skrá­setn­ing á þess­ari vin­sælu kjöt­kássu er þó ekki fyrr en á 19. öld, seinna birt­ist upp­skrift að rétt­inum í bók franska kokks­ins Auguste Escoffier. Rétt­ur­inn sem upp­haf­lega var dæmi­gerður sveita­réttur þró­að­ist síðan í rétt sem mátti finna á bestu veit­inga­húsum Frakk­lands.

Upp­skrift Escoffiers var við­miðið og tíðk­að­ist þá að hægelda stóran kjöt­bita og bera fram. Seinna meir gerði Julia Child rétt­inn frægan vest­an­hafs en í upp­skrift hennar voru not­aðir litlir kjöt­bitar eða gúllas og er það sú nálgun sem sést oft­ast nú til dags.

Rétt­ur­inn er til­val­inn helg­ar­réttur þegar kokk­ur­inn hefur nægan tíma til að nostra við að steikja kjötið og leyfa pott­rétt­inum að malla á hell­unni eða inni í ofni. Gott er að bera hann fram með soðnum nýjum kart­öflum ásamt góðu rauð­víns­glasi.

Boeuf Bourgignon

fyrir 4-6

1 ½ kg nauta­kjöt, skorið í 3 cm stóra bita, t.d. nauta­hnakki eða gúllas
1 ½ tsk. salt
½ tsk. pipar
150 g gæða beikon, skorið í bita
1 laukur, saxaður
1 stór gul­rót, sneidd
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir
1 msk. timí­an­lauf
2 tsk. tómat­mauk
2 msk. hveiti
1 flaska (750 ml) rauð­vín
1 lár­við­ar­lauf
15 perlu­laukar, afhýddir
1 msk. ólífu­olía
1 dl nauta­soð
30 g smjör
300 g sveppir, skornir í þykkar sneiðar
stein­selja, söxuð

Hráefnið.

1 Hitið ofn í 160°C án blást­urs. Þerrið kjöt­bit­ana og saltið þá og piprið, setjið til hliðar og látið standa við stofu­hita í hálf­tíma. Takið fram góðan pott sem má fara inn í ofn, t.d. steypu­járn­s­pott, og setjið yfir með­al­háan hita. Steikið beikonið í pott­inum þar til það verður fal­lega brúnað og stökkt, ef það fer að brenna við pott­inn er gott að setja smá­vegis ólífu­olíu út í pott­inn. Veiðið beikonið upp úr pott­inum og leggið á eld­hús­pappír, skiljið fit­una eftir í pott­inum.

Nauta­kjötið steikt.

2 Hækkið hit­ann lít­il­lega undir pott­inum og steikið nauta­kjötið á öllum hliðum upp úr fit­unni. Mik­il­vægt er að hafa gott bil á milli bit­anna og því getur þurft að steikja kjötið í tveimur hollum. Setjið kjötið til hliðar.

Græn­metið steikt.

3 Lækkið hit­ann undir pott­inum og steikið lauk og gul­rót þar til græn­metið er orðið mjúkt. Bætið hvít­lauk og timí­ani út í og steikið í 1 mín. Hrærið tómat­mauk og hveiti saman við þar til það sam­lag­ast.

Rauðvíni hellt út í.

4 Hellið síðan rauð­víni út í pott­inn. Sjóðið í 2-3 mín. til að vín­and­inn sé gufaður upp áður en kjöt­inu er bætt í pott­inn.

5 Bætið kjöt­inu og helm­ingnum af beikon­inu út í pott­inn og flytjið inn í ofn ásamt lár­við­ar­laufi og eldið þar til kjötið er orðið lunga­mjúkt, í u.þ.b. 2 klst. Gott er að snúa kjöt­inu eftir tæpa klukku­stund.

Perlu­laukar og sveppir eld­aðir.

6 Á meðan kjötið eld­ast eru perlu­laukar og sveppir eld­aðir. Setjið 10 g smjör og 1 msk. af ólífu­olíu á pönnu og látið yfir með­al­háan hita, bætið perlu­lauknum út á pönn­una þegar smjörið hefur bráðnað. Steikið í u.þ.b. 10 mín. og hrærið í þeim reglu­lega svo þeir brún­ist á öllum hliðum. Hellið 1 dl af nauta­soði eða rauð­víni út á pönn­una og saltið og piprið eftir smekk. Hyljið pönn­una til hálfs með loki eða klippið til smjör­pappír til að leggja ofan á pönn­una og eldið þar til lauk­ur­inn er orð­inn alveg mjúkur, u.þ.b. 40-50 mín. Setjið til hliðar. Notið afang­inn af smjör­inu til að steikja svepp­ina og saltið þá og piprið eftir smekk. Setjið til hliðar.

Gott er að bera rétt­inn fram með t.d. brauði.

7 Takið kjötið úr ofn­inum og blandið perlu­lauknum, svepp­unum og afgang­inum af beikon­inu saman við. Sáldrið stein­selju yfir og berið fram. Gott er að bera rétt­inn fram með nýjum kart­öflum eða góðri kart­öflumús og brauði.

Texti / Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Bergþóra Jóns­dóttir
Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður