Kínóa er bæði hollt og mjög mettandi og því tilvalið t.d. að eiga það tilbúið í ísskápnum og dreifa síðan yfir salatið.
Kínóasalat með fetosti, sítrónu og kryddjurtum
fyrir 2
3-4 dl soðið kínóa
250 g kirsuberjatómatar, skornir í fernt
½ -1 gúrka, fræhreinsuð og skorin í litla bita
1 bakki blaðlauksspírur
100-150 g hreinn fetaostur, mulinn gróft
1 búnt fersk steinselja, smátt söxuð
4-5 greinar fersk mynta, smátt söxuð
safi úr 1 sítrónu
½ dl jómfrúarólífuolía
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar

Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar. Þetta salat geymist sérstaklega vel í kæli og er tilvalið að taka með í nesti.
Berið það gjarnan fram með auka sítrónusneið.
Sjá einnig: Hvernig á að sjóða kínóa?
Umsjón / Kristín Dröfn Einarsdóttir
Myndir / Hákon Davíð Björnsson
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir





















Athugasemdir