Límonaði
fyrir 4-6
2 dl sykur
2 ½ dl vatn
2 ½ dl sítrónusafi (4-6 sítrónur)
Sjóðið sykur og vatn saman þar til sykurinn er uppleystur. Hellið í skál og bætið sítrónusafa út í. Bætið u.þ.b. 8-10 dl af köldu vatni út í og smakkið til. Kannski viljið þið hafa blönduna veikari og nota meira af vatni.
Sykurkantur á glös:
Setjið eggjahvítu og sykur í sitt hvora skálina. Dýfið glasröndinni í eggjahvítuna og síðan í sykurinn.
Umsjón / Sigríður Björk Bragadóttir
Myndir / Rakel Ósk Sigurðardóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir





















Athugasemdir