„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skemmtilegar staðreyndir um súkkulaði – Kynorkuaukandi og bætir minni

Hér koma sjö skemmti­legar stað­reyndir um súkkulaði.

Skemmtilegar staðreyndir um súkkulaði – Kynorkuaukandi og bætir minni
Mynd / Heiðdís Guðbjörg|Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Kakó­baunin er upp­runnin í Mið- og Suður-Ameríku, talið er að fólk þar hafi byrjað að rækta kakó­baunir um 1250 f.Kr. og jafn­vel fyrr. Kakó var hluti af menn­ingu Maya og Azteka þar sem kakó­drykkir voru hluti af trú­ar­legum athöfnum. Aztekar mátu baun­ina svo mik­ils að hún var notuð sem gjald­mið­ill í við­skiptum.

Kakó­plönt­unni er oft skipt niður í tvær gerðir, aðra sem gefur af sér hágæða­ka­kó­baunir og hina sem gefur af sér venju­legar kakó­baunir sem not­aðar eru í almenna iðn­að­ar­fram­leiðslu. Á plönt­unni vex ávöxtur en það er innan í honum sem baun­irnar eru, hver ávöxtur inni­heldur u.þ.b. 30-40 kakó­baunir. En baun­irnar þurfa að fara í gegnum ýmis vinnslu­stig áður en hægt er að búa til úr þeim súkkulaði, þessi stig geta skipt sköpum um hvort úr verði gæðasúkkulaði eða ekki.

Súkkulaði hefur verið talið kynorku­auk­andi og nýtti Casanova, flag­ar­inn frægi, sér krafta þess. Hann á að hafa drukkið heilan bolla af heitu súkkulaði áður en hann hóf ásta­leiki með rekkju­nautum sínum.

Á tímum seinni heim­styrj­ald­ar­innar voru nas­istar Þýska­lands með þá fyr­ir­ætlun að taka Winston Churchill, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, af lífi með súkkulaði­stykki. Sprengju­sér­fræð­ingar Hitlers höfðu hulið sprengjur með dökkum súkkulaði­hjúp og pakkað inn í gylltar og svartar pakkn­ingar. Þeir ætl­uðu sér síðan að nota njó­sn­ara innan Bret­lands til að koma súkkulað­inu fyrir í borð­stofu stríðs­ráðs­ins. Leyni­þjón­usta Breta komst þó að þessu laun­ráði og náði að koma í veg fyrir fram­kvæmd þess.

Spán­verjar voru fyrstir til að flytja kakó­baun­irnar með sér til Evrópu og þeir unnu súkkulaði úr kakó­baun­unum og sykri. Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Hvergi í heim­inum er selt eins mikið af súkkulaði og á flug­vell­inum í Brussel, búð­irnar þar selja meira en 800 tonn af súkkulaði á ári hverju.

Spán­verjar voru fyrstir til að flytja kakó­baun­irnar með sér til Evrópu og þeir unnu súkkulaði úr kakó­baun­unum og sykri. Þeir vernd­uðu upp­skrift­ina sína vel og í um 100 ár voru þeir ein­ráðir á mark­aði í Evrópu. Seinna láku spænskir munkar upp­skrift­inni og brátt fóru fleiri að fram­leiða súkkulaði.

Rann­sóknir sýna að dökkt súkkulaði getur haft jákvæð áhrif á heilsu fólks. Einnig er talið að dökkt súkkulaði veiti betra minni og skarp­ari athygli með því að auka blóð­flæði til heil­ans. Vís­inda­menn hafa teflt fram þeirri kenn­ingu að dökkt súkkulaði geti hjálpað fólki að sjá betur í slæmu skyggni.

Texti / Nanna Teits­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fróðleikur

Dularfull baktería étur flak Titanic: „Hefur hvergi fundist annars staðar“
Menning

Dul­ar­full bakt­ería étur flak Titanic: „Hefur hvergi fund­ist ann­ars staðar“

Baktería sem fannst árið 2010 á flaki Titanic, er smá saman að éta flak skips­ins til agna. Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður er haf­sjór upp­lýs­inga um allt milli him­ins og jarðar eins og nýjasta Facebook-færsla hans ber vitni um. Þar segir hann frá bakt­eríu sem fannst árið 2010 á flaki Titanic. Bakt­er­ían étur járn skips­ins smá saman og er nú talið að...
Illugi sýnir okkur hvað við erum lítil: „Maður lifandi, allt það furðulega líf!“
Menning

Illugi sýnir okkur hvað við erum lítil: „Maður lif­andi, allt það furðu­lega líf!“

Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður með meiru er haf­sjór af fróð­leik, það vita allir sem vilja vita. Í nýj­ustu færslu sinni á Facebook kemur hann með fróð­leik sem sýnir okkur hversu agn­arsmá við mann­fólkið erum í stóra sam­heng­inu. Í færsl­unni birtir Illugi gull­fal­lega ljós­mynd af fimm stjörnu­þokum sem kall­ast Kvintett Stefáns. Segir hann ómögu­legt að segja til um fjölda sól­stjarna innan Kvin­tetts­ins...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður