„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tobba Marinós svarar fyrrum eiganda DV og segist stolt af starfinu

Tobba Marinós svarar fyrrum eiganda DV og segist stolt af starfinu

Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður, segir Tobbu Mar­in­ós­dóttur, rit­stjóra DV, ekki vera starfi sínu vaxin. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Tobba nú ekki gefa mikið fyrir þessi ummæli fyrrum eig­anda DV og vonar að Sigurður fari að njóta lífs­ins.

„Ég ætla að vona að Siggi ætli ekki að eyða öllu sum­ar­frí­inu sínu í svona væl. Ég segi bara eins og sagt er við börnin mín á leik­skóla: Láttu þér ganga vel kæri vinur,“ segir Tobba Mar­in­ós­dóttir, rit­stjóri DV, í sam­tali við Mannlíf.

„Láttu þér ganga vel kæri vinur.“

Vísar Tobba þar til þeirra orða sem Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður og fyrr­ver­andi eig­andi DV, lét falla á Facebook fyrr í dag, í tengslum við umræðu um lestur dv.is. Þar segir Sigurður orð­rétt: „Já það liggur fyrir að lestur dv.is hefur hrunið hjá Tobbu enda hefur hún engan sans fyrir fréttum eða hvað það er sem fjöld­inn les. Það bera for­síðu­við­töl DV með sér síðan hún tók við.“

Ummælin ritar Sigurður við Facebook-færslu fyrrum mark­aðs- og þró­un­ar­stjóra DV, en með henni fylgir mynd sem sýnir að lestur dv.is hefur farið niður á síð­ustu sautján vikum.

„Siggi er með annað inter­net en ég ef hann segir lest­ur­inn hafa hrunið milli ára. Allir miðlar fara niður um hásumar en lest­ur­inn milli ára er ekki niður og DV er á blússandi sigl­ingu,“ bendir Tobba á.

Hún segir fyrrum rit­stjórn DV hafa staðið sig vel og hefur ekk­ert nema góða hluti um hana að segja. Með nýjum rit­stjóra og rit­stjórn fylgi hins vegar nýjar og ferskar áherslur. „Sjálf hef ég alltaf verið umdeild mann­eskja og ég var ekki ráðin í þessa vinnu af því að ég þyki þægi­leg heldur af því að ég fer mínar leiðir. Þau voru með sína sýn og ég er með mína. Og ég er stolt af for­síðu­við­töl­unum mínum. Þau eru alls konar rétt eins og íslenska þjóðin. Þannig að ég ætla bara að halda áfram að gera hlut­ina eftir mínu höfði,“ segir hún létt í bragði.

Þess má geta að Sigurður keypti DV í fjórða sinn í byrjun sept­em­ber árið 2017, þegar Frjáls fjöl­miðlun keypti DV, Pressuna og fleiri fjöl­miðla sem voru í eigu Pressu­sam­stæð­unnar.

DV og tengdir miðlar runnu undir Torg ehf., sem er einnig eig­andi Frétta­blaðs­ins og vefs með sama heiti og Hring­brautar. Sam­run­inn var sam­þykktur af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 25. mars. Tobba var ráð­inn rit­stjóri DV 31. mars.

Sjá einnig: Tobba Marinós er nýr rit­stjóri DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakkaskraut, ég er þurrskreyting.“
Innlentviðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakka­skraut, ég er þurr­skreyt­ing.“

Krist­berg Jónsson, betur þekktur sem Kibbi í Baulu, og Sigrún kona hans, ráku lengi vel áning­ar­stað­inn Baulu í Borg­ar­firði og en Kibbi ræddi meðal ann­ars þá reynslu sína í við­tali við Sjóarann á dög­unum. Kibbi er bæði yfir­lýstur sós­í­alisti og mik­ill vél­hjóla­maður. Sagan segir að hann hafi eitt sinn hafi hann eign­ast blátt mót­or­hjól en verið snöggur til að sprauta...
Elísabet Jökulsdóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.
Innlentviðtöl

Elísabet Jök­uls­dóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.

Elísabet Jök­uls­dóttir, skáld­kona og rit­höf­undur, fékk ígrætt nýtt nýra á laug­ar­dag­inn en hún var með nýrna­bilun á loka­stigi. Systir Elísa­betar, Unnur Þóra, birti færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún sagði frá þeim gleði­tíð­indum að Elísabet hafi fengið nýtt nýra í Svíþjóð og að allt hafi gengið eftir óskum. Elísabet var önnum kafin þegar blaða­maður náði á hana, enda...
Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkjugarðinum“
Innlentviðtöl

Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkju­garð­inum“

Þessi grein er brot úr við­tali Svövu Jóns­dóttur við séra Jónu Hrönn Bolla­dóttur. Viðtalið má í heild sinni lesa hér. Jóna Hrönn Bolla­dóttir fædd­ist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjón­anna Bolla Þóris Gúst­avs­sonar, fyrrum vígslu­bisk­ups að Hólum í Hjalta­dal, og Matt­hildar Jóns­dóttur hár­greiðslu­meist­ara og hús­móður. Jóna Hrönn er ein af sex systk­inum og þegar hún var...
Innlent

Simbi var á kafi í und­ir­heimunum en sneri við blað­inu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín,...
Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“
Innlentviðtöl

Ómar segir miðla og heil­ara oft verða fyrir for­dómum: „Erum jafn mis­jöfn eins og við erum mörg“

Ómar Pét­urs­son starfar sem heil­ari og mið­ill. Hann seg­ist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. Í helg­ar­við­tali Mannlífs við Ómar segir hann frá því sem hann fæst við á ein­lægan og opinn hátt. Ómar segir að fólk sem vinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins