„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hægt að treysta langflestum“

„Hægt að treysta langflestum“
Eiríkur Ágústs­son annar eig­andi Silf­ur­túns. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Á bænum Silf­ur­túni á Flúðum rækta Eiríkur Ágústs­son og Olga Lind Guð­munds­dóttir jarð­ar­ber og tómata auk hind­berja í litlu magni. Upp­skeru­tím­inn stendur nú sem hæst enda jarð­ar­ber með sanni sum­ar­á­vöxtur.

„Jarð­ar­berja­plönt­urnar eru til staðar allan árs­ins hring en við upp­skerum í um það bil níu mán­uði,“ segir Eiríkur sem tekur á móti okkur í Silf­ur­túni en Olga þurfti óvænt að bregða sér í bæinn.

„Eftir að við fórum að lýsa hluta af gróðr­ar­stöð­inni lengd­ist upp­skeru­tíma­bilið um einn og hálfan mánuð í báða enda. Við byrjum að tína fyrri­part­inn í mars og getum verið að tína fram í miðjan des­em­ber. Þá er upp­sker­unni lokið og plönt­urnar þurfa hlé yfir vet­ur­inn áður en þær blómstra á ný. Hver planta nýt­ist tvisvar þannig að hávet­ur­inn fer í að snyrta plöntur sem nota á aftur og koma þeim í kald­ara lofts­lag.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Þá gróð­ur­setjum við einnig nýjar plöntur, græðlinga sem við kaupum, í hús­unum sem í er lýs­ing og hreinsum að auki öll húsin til að gera þau klár fyrir næsta tíma­bil. Við plöntum í húsin á mis­mun­andi tíma til að dreifa upp­sker­unni og hafa alltaf eitt­hvað flæði inn á mark­að­inn. Ferlið með hverja plöntu tekur fimm mán­uði, frá gróð­ur­setn­ingu og þangað til allt hefur verið tínt af plönt­unum.“

Eiríkur segir að jarð­ar­berin séu best beint af plönt­unni því þá sé hita­stigið á ber­inu full­komið. „Það á ekki að borða þau ísköld, þau eru bragð­sterk­ari við stofu­hita. En auð­vitað þarf að geyma berin í kæli, gott er að taka þau út eitt­hvað áður en þeirra er neytt, til að þau hafi jafnað sig.“

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Sjálfsafgreiðsla í litlum skúr

Nánast öll upp­skeran í Silf­ur­túni er seld í gegnum Sölu­fé­lag garðykju­manna, en fyrir framan gróðr­ar­stöð­ina eru þau með lít­inn sölu­skúr með sjálfs­af­greiðslu.

„Það hefur komið í ljós að í okkar þjóð­fé­lagi er hægt að treysta lang­flestum.“

„Þar getur fólk keypt tómata og jarð­ar­ber og ann­að­hvort skilið eftir pen­inga eða lagt inn á reikn­ing fyrir kaup­unum. Það svarar ekki kostn­aði að vera með starfs­mann í þessu og þetta hefur gengið vel svona. Það hefur komið í ljós að í okkar þjóð­fé­lagi er hægt að treysta lang­flestum.“

Upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans 2020. For­síðu­mynd/Hákon Davíð Björns­son

Ítar­legra við­tal við Eirík og flottar myndir eru í Upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans, 8. tbl. 2020.

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðarber

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður