„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vigdís Erla: „Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti“

Vigdís Erla: „Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti“

Mannlíf heyrði í Vigdísi Erlu Rafns­dóttur sem er mik­ill mat­gæð­ingur og hefur í raun verið það síðan að hún man eftir sér, hún er Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una.

„Litla ég, end­aði oftar en ekki í eld­hús­inu sem gestur star­andi á mat­ar­gerð heim­il­is­manna, enda get ég gleymt mér í youtube glápi ef ég dett inn á ein­hverja skemmti­lega mat­ar­rás.“

„Ég á svo skemmti­lega minn­ingu frá því þegar ég fékk vin­konur mínar í heim­sókn og við bjuggum til dumplings. Við tróðum okkur mörg saman við eld­hús­borðið og dund­uðum okkur við að pakka fill­ing­unni inn í deig og bjuggum til geggj­aða sósu til að dýfa í. Ég vildi að ég gæti deilt með ykkur þeirri upp­skrift, en ég á hana því miður ekki til. Strák­arnir mínir fengu að vera með og sá yngri var svo spenntur yfir matnum og var hann reglug­lega búinn að skella í sig hráum dumplings.“

Upp­á­halds­rétt­ur­inn
Vigdís segir okkur frá því að hún eigi upp­á­halds­rétti frá öllum heims­hornum: „en ein­hvers­staðar hef ég lent í lukku­pott­inn með vini en þeir eru algjörir meist­ara­kokkar. Mat­ar­gerðin mín er oft lituð af þeirri þekk­ingu sem ég fæ frá vinum og fylgi ég sjaldn­ast upp­skrift. Maturinn endar oft sem svona abstract list­ar­verk segir Vigdís og glottir.

Drengirnir mín virð­ast hins vegar vera bara ósköp ham­ingju­samir með það sem ég dúndra fram á borðið og sætta sig við ótrú­leg­ustu hluti, en ég hef líka fengið spurn­ingu frá þeirra vinum af hverju mat­ur­inn væri svona skrít­inn hjá ykkur?“ Barns­faðir minn er frá Ghana svo við eldum að jafn­aði oft ganískan mat sem er virki­lega góm­sætur.

„Rétt­ur­inn sem poppar í hug­ann minn núna er hins vegar nauta­steik, bak­aðar kart­öflur og heima­til­búin berna­ise sósa. Ætli ég skelli ekki í þessa um helg­ina, ég er nefni­lega að reyna að temja mér það að elda eftir upp­skrift, alla­vega einu sinni í viku.“

Vigdís segir okkur glöð í bragði að hún sé miklu meiri bak­ari í sér en kokkur því þegar það kemur að bakstri þá ger­ast galdr­a­rnir. „Ég er búin að mastera súr­deigs­brauð og geri það auð­veld­lega eftir til­finn­ing­unni, svo er ilm­ur­inn af nýbök­uðu brauði svo dásam­legur.“

Annars er „týpískur dagur eins og að ganga í þoku því ég er sjaldn­ast með fyr­ir­fram ákveðnar hug­myndir um hvað ég ætla að borða. Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti.“

Nautaribeye og bernaise

Fyrir 4-5

Nautaribeye

  • 3-4 naut­ari­beye steikur (fer eftir stærð og þykkt)
  • Smjör til steik­ingar
  • Salt, pipar og gott steik­ar­krydd
  • Hitið ofn­inn 160°C.
  • Bræðið smjör á pönnu og steikið hvora hlið á háum hita í um 1-2 mín­útur (fer eftir þykkt) og kryddið báðar hliðar.
  • Færið steik­urnar yfir í eld­fast mót, hellið smjör­inu af pönn­unni yfir og eldið í ofni þar til kjarn­hiti nær 48°C.
  • Takið steik­urnar þá út úr og leggið álp­appír þétt að þeim þar til kjarn­hiti nær um 57-58°C (fyrir medium-rare steik).
  • Fjar­lægið álp­app­ír­inn og ausið smjör­inu úr botni fats­ins yfir steik­urnar og kryddið með örlitlu af steik­ar­kryddi í við­bót, hvílið kjötið í um 10  mín­útur áður en það er skorið niður.

Bernaise sósa

  • 8 eggja­r­auður
  • 500 g smjör
  • 2 msk. Bernaise essens
  • 1-2 msk. fljót­andi nauta­kraftur
  • Pipar og salt eftir smekk
  • 3-4 msk. Estragon krydd
  • Bræðið smjörið í potti og leyfið því að kólna þar til það er ylvolgt (ef það er of heitt eru meiri líkur á að sósan skilji sig). Ef þið eruð í tíma­þröng er gott að hella smjör­inu úr pott­inum í annað ílát til að það sé fljót­ara að kólna niður.
  • Þeytið á meðan eggja­r­auð­urnar þar til þær þykkj­ast og lýs­ast (um 5 mín­útur).
  • Bætið þá smjör­inu saman við í mjórri bunu og hrærið á meðan á lágum hraða.
  • Bætið rest­inni af hrá­efn­unum saman við og þeytið stutta stund og berið strax fram.

Kramdar kartöflur með parmesan

  • Um 10 með­al­stórar kart­öflur eða fleiri minni
  • Virgin ólífu­olía
  • Gróft salt, pipar, söxuð stein­selja
  • Parmesan ostur
  • Sjóðið kart­öfl­urnar þar til þær mýkj­ast.
  • Leggið bök­un­ar­pappír í ofn­skúffu og hellið smá ólífu­olíu yfir hann.
  • Raðið kart­öfl­unum því næst í skúff­una og kremjið þær laus­lega niður með glasi/kart­öflu­stapp­ara.
  • Stráið aftur vel af ólífu­olíu yfir ásamt grófu salti og pipar.
  • Rífið að lokum parmesan ost yfir og bakið í 200° heitum ofni í um 15 mín­útur eða þar til kart­öfl­urnar fara að gyll­ast og verða stökkar að utan.
  • Stráið þá smá saxaðri stein­selju yfir (má sleppa).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Matgæðingur Mannlífs

Matgæðingur Mannlífs: „Aldrei að vita nema eldri fjölskyldumeðlimir eigi Raclette-grill“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Mat­gæð­ingur Mannlífs: „Aldrei að vita nema eldri fjöl­skyldu­með­limir eigi Raclette-grill“

Íris Ellen­berger er þekkt sem bæði bar­áttu­kona og fræði­kona, sem er jákvætt því það er ekk­ert verra en þegar ófróðir taka slag­inn. Íris er fædd og upp­alin á Íslandi, en faðir hennar og ætt­ar­nafnið eiga rætur sínar að rekja til Sviss sem rómað er fyrir horn­rétt fólk og ofur­skipu­lagt, en þaðan kemur líka Raclette sem er svo­lítið mót­sagna­kennt, því þar...
Líf Magneudóttir: Ég er liðtækur aðstoðarkokkur og held manninum mínum félagsskap með masi“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Líf Magneu­dóttir: Ég er lið­tækur aðstoð­ar­kokkur og held mann­inum mínum félags­skap með masi“

„Þegar ég var hjá ömmu minni Íbí sem krakki þá tók hún á það ráð að koma ofan í mig fiski með því að búa til rétt­inn Surtsey! Þá stapp­aði hún saman fisk, kart­öflur og smjör og bjó til fjall úr því. Síðan bjó hún til holu í mitt fjallið og lét leka tómatsósu niður „hlíð­arnar“. Þetta kall­aði hún Surtsey...
Kolbrún, eigandi Jurtaapóteksins: „Matur sem leikur við öll skynfærin“
ViðtalMatgæðingur Mannlífs

Kolbrún, eig­andi Jurta­apó­teks­ins: „Matur sem leikur við öll skyn­færin“

Kolbrún Björns­dóttir, eig­andi Jurta­apó­teks­ins, hefur starfað við grasa­lækn­ingar í 22 ár eða frá því að hún útskrif­að­ist úr grasa­lækna­skól­anum í Bret­landi árið 1993. Kolbrún er Mat­gæð­ingur Mannlífs, þessa vik­una. Við spurðum Kolbrúnu hvort hún ætti sinn upp­á­halds­rétt. „Upp­á­halds­réttur minn, vá, það er ekk­ert auð­velt að finna einn sér­stakan. Ég hugsa að ann­að­hvort sé það matur sem minnir mig á æsk­una...
Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast“
ViðtalMatgæðingur Mannlífs

Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar upp­skriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferð­ast“

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er Júlía Magn­ús­dóttir, hjá Lifðu til fulls – heilsu­m­ark­þjálfun. Lifðu til fulls hjálpar konum að öðl­ast breyttan lífs­stíl og finna hvað lík­am­inn getur verið orku­mik­ill þegar hann er laus við óþarfa syk­ur­þörf allan sól­ar­hring­inn. Þér á að líða vel í eigin skinni og er útkoman fyrir marga þyngd­ar­tap, en það er alls ekki alltaf aðal­mark­miðið. Góðar...
Hanna Katrín Friðriksson: „Þegar ég var krakki þurftu foreldrar mínir að safna réttum á borðið“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Hanna Katrín Frið­riks­son: „Þegar ég var krakki þurftu for­eldrar mínir að safna réttum á borðið“

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er hin stór­snjalla Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, en hún ætlar að deila með okkur sínum mat­ar­hefðum og upp­á­halds­réttum. „Pabbi minn var danskur og mat­ar­hefðir á æsku­heim­ili mínu í Breið­holti tóku mið af því. Ég ólst til dæmis upp við jóla­hlað­borð með fjöl­skyld­unni löngu áður en það varð alsiða í íslensku jóla­haldi. Ég held enn í...
Ásdís fasteignasali: „Elskar litríkan og hollan mat“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Ásdís fast­eigna­sali: „Elskar lit­ríkan og hollan mat“

Ásdís Ósk Vals­dóttir, fast­eigna­sali og lífs­stíls­gúrú, gjör­breytti mat­ar­venjum sínum og borðar nú 90% „clean“. Ásdís er mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una og fengum við að skyggn­ast aðeins inn í hennar dag­lega líf. „Ég set reglu­lega mat­seð­il­inn minn inn á Instagram-síð­una mína til að gefa fólki hug­myndir að dags­plan­inu. Ég átt­aði mig á því að ef ég setti ekki upp mat­seðil fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins