„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð vika/slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika

Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti.

Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi.

Leik­skól­inn Aðalþing tók til starfa í mars 2009. Í skól­anum eru allt að 120 börn á aldr­inum eins til sex ára og 30 starfs­menn. Starf skól­ans hefur ein­kennst af miklum metn­aði, starfs­þróun og umbóta­starfi. Skólinn hefur frá upp­hafi stefnt að því að vera rann­sókn­ar­leik­skóli í far­ar­broddi og þar hefur verið ráð­ist í fjöl­mörg þró­un­ar­verk­efni.

Skólinn er rek­inn í anda hug­mynda­fræði Loris Malaguzzi, sem oft­ast er kennd við bæinn Reggio Emilia á Ítalíu. Áhersla er lögð á leik­inn sem und­ir­stöðu náms hjá börn­unum, skap­andi starf og á að umhverfi leik­skól­ans styðji við nátt­úru­lega rann­sóknar- og sköp­un­ar­þörf barna. Hlutverk starfs­fólks er að vera sam­verka­menn barn­anna. Lykilorð í starf­inu eru ígrundun – lýð­ræði – nátt­úra – upp­lýs­inga­tækni.

Starfið á Aðal­þingi hefur vakið athygli á lands­vísu og út fyrir land­stein­ana, m.a. fyrir mat­ar­menn­ingu sína. Áhersla er lögð á að matur sé sem mest unn­inn  frá grunni í leik­skól­anum. Börnin borða í sér­stakri mat­stofu í fal­legu, heim­il­is­legu umhverfi, börnin velja sér sjálf mat af hlað­borði og ráða hvar þau sitja.

Slæm vika

Land­spít­al­inn hefur því miður ekki átt góða viku eða miss­eri.Það er eins og að sparka í liggj­andi mann fyrir þá sem standa vakt­ina á Land­spít­al­anum þegar stöku ráð­herrar og alþing­is­menn hrópa á torgum hversu brýnt það sé afnema allar tak­mark­anir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þetta segir Tómas Guð­bjarts­son, yfir­læknir á skurðsviði Land­spít­al­ans og pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands. Hann líkir Land­spít­al­anum við rekald sem engin virð­ist ætla að koma til hafnar.

Tómas hefur und­an­farnar vikur verið óhræddur við að láta skoðun sína á stöðu Land­spít­al­ans í ljós og dregur ekk­ert undan í gagn­rýni sinni í grein sem birt­ist á visir.is á mið­viku­dag­inn.

Þar segir að hann ástandið á gjör­gæslu­deildum spít­al­ans vera algjör­lega ólíð­andi og starf­semi hjarta­skurð­deildar og fleiri deilda sé í upp­námi fyrir vikið. Ekki hafi verið hægt að fram­kvæma neinar opnar hjarta­að­gerðir í rúm­lega tvær vikur á einu hjarta­skurð­deild lands­ins. „Það er ein­skær heppni að engir sjúk­lingar hafa komið brátt inn og þurft á lífs­bjarg­andi aðgerð að halda á þessum tíma.“

Biðlisti af alvar­lega hjart­veikum sjúk­lingum hafi hlað­ist upp og þessir skjól­stæð­ingar hans megi margir afar illa við bið eftir aðgerð enda geti sú bið bein­línis verið lífs­hættu­leg.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins