„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í góðum málum – Í slæmum málum

Í góðum málum – Í slæmum málum
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Í góðum málum

Tann­lækn­ir­inn Heimir Hall­gríms­son, sem er í guða­tölu hér á landi eftir að hafa aðstoðað Lars Lagerbäck við að koma karla­liði Íslands á Evr­ópu­mótið og síðan komið lið­inu á Heims­meist­ara­mótið fyrir nokkrum árum, er heldur betur í góðum málum. Á dög­unum var til­kynnt að Heimir hafi verið ráð­inn aðal­þjálf­ari karla­liðs Jamaíka í knatt­spyrnu en liðið er í 62 sæti á heims­list­anum, einu sæti fyrir ofan Ísland. Heimir hefur verið eft­ir­sóttur síð­ustu ár en hann þjálf­aði kat­arska félagið Al-Arabi en hann yfir­gaf liðið á síð­asta ári og hefur und­an­farið verið ráð­gjafi Hermanns Hreið­ars­sonar hjá ÍBV í Bestu deild karla. Eyja­mað­ur­inn tekur með sér þaul­vana menn en Helgi Kol­viðs­son verður aðstoð­ar­þjálf­ari og Guð­mundur Hreið­ars­son verður mark­manns­þjálf­ari liðs­ins. Þá verður Þjóð­verj­inn Sebast­ian Box­leitner styrkt­ar­þjálf­ari liðs­ins eins og þegar Heimir þjálf­aði Ísland. Spenn­andi verður að sjá hvort Heimir nái að koma Jamaíka á HM, sem þá yrði í annað skipti sem liðið kæm­ist á það mót.

Í slæmum málum

Flokkur fólks­ins er í nokkuð slæmum málum þessa stund­ina. Fyrst kom upp úr dúrnum að vara­þing­maður flokks­ins tengd­ist hinu hræði­lega hrossa­níðs­máli á Borg­ar­nesi þar sem svo virð­ist vera að illa hafi verið farið með hross af eig­endum þeirra. Sagðist Inga Sæland, for­maður flokks­ins hafa fengið algjört sjokk þegar hún frétti að vara­þing­maður flokks­ins tengd­ist mál­inu. Þá var dóttir vara­þing­manns­ins einn­nig tengd mál­inu en hún var í fram­boði fyrir Flokk fólks­ins í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum og hefur unnið trún­að­ar­störf fyrir flokk­inn. Voru þær báðar beðnar um að stíga til hliðar sem þær og gerðu. En þetta er ekki það eina sem skekið hefur flokk­inn und­an­farið en þrjár konur úr flokknum stigu fram á Akureyri og lýstu lít­ils­virð­andi fram­komu í sinn garð og í sumum til­fellum kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi karl­manna í for­ystu flokks­ins fyrir norðan. Vara­for­mað­ur­inn Guð­mundur Ingi Krist­ins­son gaf út yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist vilja boða til stjórn­ar­fundar þar sem farið yrði yfir alvar­legar ásak­anir um ólíð­andi fram­komu í garð kven­leið­toga flokks­ins á Akureyri. Nú er bara spurn­ing hvað næsta skref Ingu Sæland verði en hún er þekkt fyrir að ganga hreint til verks.

Hægt er að lesa nýjasta blað Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Endurkoma Gylfa og fall Bjarna
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

End­ur­koma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna...
Af geimverum og fórnarlömbum mansals
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af geim­verum og fórn­ar­lömbum mansals

Í góðum málum Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins