„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í góðum málum/Í slæmum málum

Í góðum málum/Í slæmum málum
Jóla­svein­arnir hans Brian Pilk­ington eru stór­kost­legir

Í góðum málum

Unnendur góðra bóka eru í afar góðum málum eins og oft­ast á þessum árs­tíma. Óvenju­margir af „stórum“ höf­undum gefa út bækur fyrir þessi jól en nefna má sem dæmi þau Ólaf Jóhann Ólafsson, Guðrúnu Evu Mínervu­dóttur, Jón Kalman Stef­áns­son, Sigríði Hagalín Björns­dóttur, Elísa­betu Jök­uls­dóttur, Arnald Ind­riða­son og Yrsu Sig­urð­ar­dóttur, svo þó nokkur séu nefnd. Þá eru ungir og efni­legir höf­undar einnig áber­andi í jóla­bóka­flóð­inu 2022 en helst ber þar að nefna Fell­bæ­ing­inn Jónas Reyni Gunn­ars­son sem gefur út bók­ina Kákasus­ger­ill­inn, Emil Hjörvar Petersen með bók­ina Dauða­leit og Eva Björg Ægis­dóttir með bók­ina Strákar sem meiða. Unnendur ljóða geta einnig ekki kvartað mikið því úrvalið af ljóða­bókum er mjög gott en bæði má sjá þekkt skáld gefa út bækur og minna þekkt en helst ber að nefna Þórarinn Eldjárn, Gerði Kristný og Stein­unni Sig­urð­ar­dóttur. Þá er sjálfur Egill Ólafsson að feta nýjar brautir með ljóða­bóka­út­gáfu sinni sem verður fróð­legt að lesa. Sem sagt, bókaunn­endur eru í stór­góðum málum og mun eflaust ekki leið­ast um jólin.

Í slæmum málum

Íslensku jóla­svein­arnir, allir 13, eða voru þeir 9? Jæja, allir jóla­svein­arnir eru í vondum málum. Af hverju? Það vantar allan snjó, að minnsta kosti þegar þetta er ritað þanng sjötta des­em­ber. Og af hverju er það slæmt fyrir jóla­svein­ana gæti ein­hver spurt sig? Því að það tefur þá ósköpin öll við að kom­ast til byggða til að geta skemmt börnum á skóla­skemmt­unum og öðrum við­burðum. Ekki geta þeir not­ast við skíði eða snjó­sleða og hvað þá upp­blásnar dekkja­slöngur eins og tíðk­að­ist austur á Héraði í denn. Nei, þeir verða að láta sé nægja að ganga yfir fjöll og fyrn­indi, hóla og hæðir, mela og móa. Reyndar þurfa þeir ekki að ótt­ast það að verða úti við að skakklapp­ast ofan úr fjöllum til að gefa í skó­inn því veðrið er búið að vera svo hel­víti gott und­an­farið. Eitthvað er þó farið að kólna enda ekk­ert skrítið, það er kom­inn des­em­ber og það á Íslandi. Það er því enn von um að snjór­inn verði kom­inn þegar sá fyrsti þarf að koma gjöfum í skó barn­anna.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta tíma­riti Mannlíf sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Endurkoma Gylfa og fall Bjarna
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

End­ur­koma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna...
Af geimverum og fórnarlömbum mansals
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af geim­verum og fórn­ar­lömbum mansals

Í góðum málum Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins