„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar

Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar

Árið 2022 var ár skandala, ofbeldis og kyn­ferð­is­áreitis ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 21 milljón sinnum, þær voru þó nokkrar sem stóðu upp úr. Á sama tíma og við lítum til baka á vin­sæl­ustu fréttir árs­ins 2022, þökkum við á rit­stjórn Mannlífs fyrir veittan stuðn­ing og óskum þjóð­inni allri gæfu­ríks árs.

Deilt innan Félags kvenna í atvinnu­rekstri: Svan­hildur í vörn fyrir Loga: „Varstu í her­berg­inu?“– 58.500 les­endur.

Árið byrj­aði með látum þegar Vítalía Lazareva kom fram í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur. Þar sagði hún fjóra þjóð­þekkta menn hafa brotið á sér, á einn eða annan hátt. Seinna kom í ljós að menn­irnir sem sætu undir ásök­unum væru þeir Ari Edwald, Hregg­viður Jónsson, Logi Bergmann Eiðsson og Þórður Már Jóhann­es­son.  Mál Vítalíu var það sem vakti einna mestu athygli á árinu sem liðið er, enda mikil rús­sí­ban­areið. Í tíunda sæti yfir mest lestnu fréttir árs­ins er fjallað um ágrein­ing sem mynd­að­ist á milli með­lima í félagi kvenna í atvinnu­rekstri. Svan­hildur Hólm, eig­in­kona Loga Bergmann var á meðal með­lima félags­ins.

Svala eyðir út unnust­anum: „Erf­ið­leikar fá mann til að rísa upp“ – 59.500 les­endur.

Hin glæsi­lega Svala Björg­vins­dóttir vekur athygli hvert sem hún fer. Engin und­an­tekn­ing var á því þegar hún hóf sam­band sitt við Kristján Einar Sig­ur­björns­son en hann er rúmum tutt­ugu árum yngri en Svala. Samband þeirra end­aði í mars þegar Kristján Einar var hand­tek­inn fyrir lík­ams­árás á Spáni. Svala fann þó ást­ina á ný um tveimur mán­uðum eftir sam­bands­slitin, sá heppni var hinn 24 ára gamli Alex­ander Alex­and­ers­son en hann er jafn­aldri Krist­jáns. Í níundu mest lesnu frétt árs­ins segir frá því þegar Svala tók út allar myndir af Krist­jáni á sam­fé­lags­miðlum, eftir hand­tök­una.

Svala og Kristján Einar

„Logi Bergmann stund­aði það að hneppa frá sér skyrt­unni og spyrja mig“: „Finnurðu ekki eitt­hvað?” – 59.800 les­endur.

Eftir við­talið lands­þekkta við Vítalíu, steig Lana Kolbrún Eddu­dóttir fram og sagði Loga Bergmann hafa áreitt sig oftar en einu sinni þegar þau störf­uðu saman á RÚV. „Stað­ur­inn sem hann valdi var yfir­leitt lyftan í Efsta­leiti, þegar við vorum bara tvö ein í henni. Mér líður ennþá illa að hugsa um þetta. Ég burð­að­ist á þessum tíma með kyn­ferð­is­brot síðan í æsku sem ég var ekki búin að vinna úr og hafði því ekki kjark til að segja honum að mér fynd­ist þetta leið­in­legt og óvið­eig­andi. Betra seint en aldrei.“

Morðið sagt tengt heim­il­is­of­beldi og sam­býl­is­kona í haldi: – Hinum látna var áður hótað líf­láti – 60.300 les­endur.

Í byrjun októ­ber var maður myrtur á Ólafs­firði, sam­býl­is­kona hans var hand­tekin ásamt þremur öðrum mönnum. Sambúðin var sögð storma­söm og talið var að morðið tengd­ist heim­il­is­of­beldi.

Ólafs­fjörður.

Ragn­hildur fyrrum eig­in­kona Eiðs Smára stefnir honum – 62.000 les­endur

Í sjötta sæti list­ans situr frétt þar sem sagt er frá ákæru Ragn­hildar Sveins­dóttur á hendur fyrrum eig­in­manns síns, Eiðs Smára.

Ragn­hildur og Eiður Smári Mynd / Úr safni Séð og Heyrt

Einar Þor­steins­son öskr­aði á Öldu eftir þátt­inn: „Mjög ljót orð sem ég ætla ekki að segja hér“– 63.300 les­endur

Í fimmta sæti situr þáttur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium, Þvotta­húsið. Þar ræða þeir við Öldu Kareni Hjalta­lín þar sem hún segir meðal ann­ars frá því þegar hún fór í við­tal við Einar Þor­steins­son, núver­andi for­manns borg­ar­ráðs Reykja­víkur, í Kast­ljós­inu. Sagði hún Einar hafa misst stjórn á skapi sínu eftir þátt­inn, öskrað á hana og rokið út. „Við röltum þarna yfir í græna her­bergið og það sprakk svo­lítið hjá honum, kom­inn hiti í hann og hann bara æddi út og ég hef ekk­ert talað við hann síðan,“ sagði Alda þeim bræðrum.

Alda Karen Hjalta­lín

Jón var ásamt hnífa­hernum á Banka­stræti Club – Fjöl­skyldu­með­limir hafa flúið land vegna árása –64.900 les­endur.

Banka­stræt­is­málið var á allra vörum í nóv­em­ber. Hópur manna réðst inn á Banka­stræti Club, að tveimur öðrum mönnum og veittu þeim stungu­á­verka. Umræður um gengja­myndun og skipu­lagða brota­starf­semi hræddi lands­menn. Mannlíf greindi fyrst frá nafni eins með­lima fyrr­nefnds hóps en hann kom síðar í við­tal við Reyni Trausta­son í þætt­inum Mann­lífið.

Jón Pétur

Vítalía með nýjar upp­ljóstr­anir í sum­ar­bú­stað­ar­mál­inu: „Þórður Már braut á mér manna mest“ – 65.900 les­endur.

Mál Vítalíu vakti áfram mikla athygli lands­manna. Í júní tal­aði blaða­maður Mannlífs við Vítalíu sem gaf nýjar upp­lýs­ingar í mál­inu furðu­lega. „Vítalía Lazareva upp­lýsir í sam­tali við Mannlíf að Þórður Már Jóhann­es­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­maður hjá Festi, hafi verið sá sem braut harka­leg­ast á henni í sum­ar­bú­stað Þórðar Más á sínum tíma. Hún segir Þórð hafa meinað henni að yfir­gefa bústað­inn og þannig svipt hana frelsi í raun.“

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fang­elsi – þyngsti dómur sem Íslend­ingur hefur hlotið – 71.700 les­endur.

Í öðru sæti list­ans situr Bak­sýn­is­speg­ill, en fyrir þá sem ekki þekkja eru það fréttir úr for­tíð­inni sem rifj­aðar eru upp. Mannlíf birtir einn slíkan öll virk kvöld. Að þessu sinni var sagt frá máli Söndru sem hlaut 37 ára fang­els­is­dóm í Banda­ríkj­unum. „Sandra var ákærð fyrir að hafa rænt tvo banka í Virgínu­ríki árið 2013. Einnig var hún ákærð fyr­ir rán, sam­ráð um að fremja rán, notk­un skot­vopna í glæp­sam­leg­um til­gangi og skot­vopna­eign í ólög­leg­um til­gangi, þrátt fyr­ir að hafa ekki verið með vopn á sér.“

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Þórunn Antónía: „Ég greind­ist í gær“ – 97.200 les­endur.

Í fyrsta sæti situr hvorki frétt um kyn­ferð­is­brot né stungu­árásir, eins og við mætti búast. Í mest lesnu frétt árs­ins hjá Mannlífi er fjallað um Facebook færslu Þórunnar Antóníu þar sem skrifar um sjúk­dóm­inn legs­límuflakk eða endó­metríósu. Svo virð­ist sem hin almenna for­vitni manns­ins á nágrann­anum hafi borið sigur úr býtum þetta árið.

Þórunn Antonía
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áramót

Borgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“
Innlent

Borgin hættir við fækkun ára­móta­brenna: „Hér er um til­finn­inga- og hita­mál að ræða“

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borg­inni um næstu ára­mót. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata til­kynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúa­ráð um að hætta við að fækka ára­móta­brennum í ár. Dóra skrif­aði: „Ég hef alltaf ein­sett mér að vera auð­mjúk og næm á sjón­ar­mið íbúa út...
Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – End­ur­koma Gylfa, harm­leikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins...
Lögreglan minnir á rétta notkun flugelda: „Þar sé reglum framfylgt“
Innlent

Lög­reglan minnir á rétta notkun flug­elda: „Þar sé reglum fram­fylgt“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu varð­andi flug­elda­notkun. Þar eru íbúar minntir á að það sé bannað að breyta flug­eldum. Þá er einnig minnt á að mik­il­vægt sé að fara var­lega og nota örygg­is­gler­augu. „Hér eru íslenskar gæsalappir“ Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan: „Reglu­lega skap­ast umræður um svo­kall­aðar skot­kökur og sam­teng­ingar á þeim. Gott...
Gæði, sérþekking og gott verð – Áramótavínið 2021 er frá Tíu Vín
Mannlífið

Gæði, sér­þekk­ing og gott verð – Ára­móta­vínið 2021 er frá Tíu Vín

Ára­móta­vínið völdu þeir vin­irnir og vín­sér­fræð­ing­arnir hjá TÍU VÍN en er það freyði­vínið Moutard Blanc de Blancs Brut 100% Chardonnay frá Bourgogne Vínið er full­komið í ára­móta­veisl­una hvort sem það er með for­rétt­inum eða til þess að skála í þegar klukkan slær tólf. Vínið vann til gull­verð­launa í French National Crémant Contest. Það hefur fengið frá­bæra dóma og er gott...
Flugeldarnir seldir á Netinu: Björgunarsveitir þurfa þinn stuðning
Innlentáramót

Flug­eld­arnir seldir á Netinu: Björg­un­ar­sveitir þurfa þinn stuðn­ing

„Það eru fjölda­tak­mark­an­ir, grímu­skylda, síðan erum við með net­sölu,“ sagði Otti Rafn Sig­mars­son, for­maður Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar í við­tali við Morg­un­blaðið. Lands­menn hafa haldið í þá ríku hefð að kveðja gamla árið með flug­eldum og virð­ist engin breyt­ing þar á þetta árið. Flug­elda­sala mun hefj­ast á morgun og því margir sem munu gera sér ferð til þess að ná sér í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins