„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslenski kvikmyndabransinn blómstrar en veðrið pirrar landann

Íslenski kvikmyndabransinn blómstrar en veðrið pirrar landann
Úr kvik­mynd­inni Á ferð með mömmu

Í góðum málum

Íslenski kvik­mynda­geir­inn er heldur betur í góðum málum þessa dag­ana. Hver frá­bær kvik­mynd rekur aðra í kvik­mynda­húsum lands­ins í byrjun árs­ins og virð­ast þær allar slá í gegn. Fyrst var það Villi­bráð Elsu Maríu Jak­obs­dóttur, sem sló heldur betur í gegn en tugir þús­unda hafa séð hana síðan hún kom út í jan­úar. Þykir þar leik­ur­inn og hand­ritið bera af, en um er að ræða ein­hvers konar gam­an­mynd með vott af sál­fræði­tryll­ingi. Því næst var það spennu­myndin Napól­eóns­skjölin sem byggð er á sam­nefndri bók eftir Arnald Ind­riða­son í leik­stjórn Óskars Þórs Axels­sonar. Kvik­myndin hefur yfir sér Hollywood-blæ, er ein­stak­lega vel unnin og þar má sjá stjörnu úr Game of Thrones, Ian Glen, ásamt Vivian Ólafs­dóttur og Jack Fox, svo fáeinir séu nefndir. Senunni stelur þó ris­inn okkar góð­lát­legi, Ólafur Darri Ólafsson, í hlut­verki sveita­durgs­ins Einars. Þriðja íslenska kvik­myndin sem frum­sýnd var nú nýlega er ferða­sagan Á ferð með mömmu í leik­stjórn Hilmars Odds­sonar, en þar fara aðal­leik­ar­arnir, Þröstur Leó Gunn­ars­son og Krist­björg Kjeld, algjör­lega á kostum. Í mynd­inni keyrir Þröstur Leó þvert yfir landið með lík móður sinnar í baksæt­inu, í þeim til­gangi að jarða hana á Eyr­ar­bakka. En sú gamla hætti ekki að kvarta í honum þrátt fyrir þá stað­reynd að hún væri dáin. Tragík­ó­mísk og list­ræn.

Í slæmum málum

Íslend­ingar sem ann­að­hvort hafa ekki efni á eða af ein­hverjum ástæðum kom­ast ekki til Tenerife til að taka tásu­myndir og liggja í sól­inni, þeir eru í slæmum málum. Af hverju? gæti ein­hver spurt sig. Svarið er sára­ein­falt. Vegna veð­urs­ins á Íslandi. Hver bölvuð lægðin kemur á eftir annarri og Veð­ur­stofa Íslands skellir fram gulum og app­el­sínu­gulum við­vör­unum, líkt og hún fái greitt fyrir það. Hún fær það reyndar, en þið skiljið hvað ég meina. Og þessar lægðir eru ekk­ert hættar að koma hingað og svo er nú páska­hretið eftir. Þessum lægðum fylgir svo alls konar vesen, hálku­slys, kvef og fastir bílar. Og ekki láta mig byrja á bíla­stæð­unum, því­lík kvöl og pína sem þau eru þegar snjór­inn frýs og verður ómögu­legur. En við sem hér dveljum getum þó huggað okkur við það, að eftir vet­ur­inn kemur vor og eftir vorið kemur tveggja vikna sumar, ef við erum heppin.

Þessi pist­ill birt­ist í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Endurkoma Gylfa og fall Bjarna
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

End­ur­koma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna...
Af geimverum og fórnarlömbum mansals
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af geim­verum og fórn­ar­lömbum mansals

Í góðum málum Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins