„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kaffikaka með hlynsírópskremi

Þessi kaka er ein af mínum upp­á­halds og ég reyni iðu­lega að finna tæki­færi til að bera hana fram. Hún er sér­stak­lega tígu­leg þegar notað er hring­laga og mynstrað form­köku­form en þó má nota hring­laga form, tvö hefð­bundin form­köku­form eða 33x 23 cm kassa­laga form.

Kaffi­kaka með hlynsírópskremi
16-20 sneiðar

Í þessa upp­skrift var notað 25 cm hring­laga mynstrað form­köku­form, þau fást í sér­versl­unum. Ef slíkt form er ekki til má nota ein­faldan hring. Einnig má nota tvö hefð­bundin form­köku­form eða 13×9 cm kassa­laga form.

380 g hveiti
2 tsk. lyfti­duft
½ tsk. mat­ar­sódi
½ tsk. salt
250 g ósaltað smjör, við stofu­hita
330 g sykur
3 egg
2 tsk. vanillu­dropar
300 g sýrður rjómi

Smyrjið formið með olíu og sáldrið hveiti ofan í og bankið svo hveitið aðeins úr. Hrærið saman hveiti, lyfti­duft, mat­ar­sóda og salt í skál og setjið til hliðar. Þeytið smjör og egg í hræri­vél þar til það verður létt og loft­kennt, u.þ.b. 4-5 mín. Bætið eggj­unum saman við, einu í einu og hrærið vel á milli. Bætið vanillu­dropum saman við og hrærið vel. Bætið sýrða rjóm­anum saman við og þeytið saman. Stoppið vél­ina og klárið að blanda allt saman með sleikju. Bætið þurr­efn­unum saman við og hrærið á lægstu still­ingu þar til allt hefur bland­ast saman. Klárið að blanda saman með sleikju svo engir þurrir hveiti­blettir verði eftir. Setjið helm­ing­inn af deig­inu í formið með skeið. Sáldrið ⅔ af pek­an­hnetu­blönd­unni yfir, setjið rest­ina af deig­inu yfir og sáldrið síðan afgang­inum af hnetu­blönd­unni yfir. Dragið hnífs­blað fram og aftur um deigið til að fá marm­ara­á­ferð í kök­una. Bakið í miðjum ofni í 45-55 mín. eða þar til köku­prjónn sem stungið er í kök­una kemur hreinn út. Takið kök­una úr ofn­inum og látið kólna í 10 mín. á grind, snúið síðan form­inu við og látið kólna í 5 mín. Athugið hvort kakan hafi losnað úr form­inu ef ekki þá skal juða og tosa létt sundur formið, þetta þarf að gera mjög var­lega svo kakan detti ekki í sundur en þetta á mest við ef notað er hring­laga skraut­form. Látið kök­una kólna alveg áður en kremið er sett á hana. Kökuna má geyma vand­lega inn­pakk­aða í plast­filmu í ísskáp í 2 daga eða í frysti í u.þ.b. 1 mánuð.

Pek­an­hnetumuln­ingur:
100 g púð­ur­sykur
50 g hveiti
2 tsk. kanill
1 msk. kakó
½ tsk. salt
50 g smjör, skorið í litla bita
50 g fín­saxaðar pek­an­hnetur

Hrærið saman púð­ur­sykur, hveiti, kanil, kakó og salt. Bætið smjör­inu saman við og myljið niður með fingr­unum og nuddið því saman við blönd­una. Bætið pek­an­hnet­unum út í og nuddið saman þar til allt hefur bland­ast vel og lík­ist gróf­kenndu mjöli. Setjið til hliðar.

Hlynsírópskrem:
120 g flór­sykur
1 dl hlynsíróp

Hrærið saman með gaffli þar til blandan er kekkja­laus og seig­fljót­andi. Hellið yfir kök­una og sáldrið litlu hnefa­fylli af söx­uðum pek­an­hnetum yfir.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður