„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sumarleg berjabaka með súkkulaði

Súkkulaði­baka með ferskum berjum sem er auð­velt að baka.

Sumarleg berjabaka með súkkulaði
|
Bakan er til­valin sem eft­ir­réttur í mat­ar­boðið en auð­velt er að baka og fylla bök­una fyr­ir­fram og geyma í kæli.

Bökur með stökkri deigskel eiga rætur sínar að rekja til Frakk­lands þar sem þær eru oft bak­aðar í formum með skelja­mynstri. Slíkar bökur prýddu borð hefð­ar­fólks og gáfu mat­reiðslu­mönnum þess tæki­færi til að skreyta mat­inn með því fal­leg­asta og fers­kasta sem var í boði hverju sinni. Skelja­mynstur bak­anna gefur til kynna nost­ur­sam­lega aðferð og kunn­áttu þess sem ber hana á borð en þó er hálfur sigur unn­inn með því að nota rétt böku­mót og restin er hægur leikur fyrir áhuga­mann­inn í eld­hús­inu. Bakan er til­valin sem eft­ir­réttur í mat­ar­boðið en auð­velt er að baka og fylla bök­una fyr­ir­fram og geyma í kæli.

Súkkulaði­baka með ferskum berjum
fyrir 4-6

Súkkulað­iskel
150 g hveiti
20 g kakó
60 g flór­sykur
½ tsk. salt
130 g ósaltað smjör, kalt og skorið í ten­inga
1 egg, hrært

Setjið hveiti, kakó­duft, flór­sykur, salt og smjör í mat­vinnslu­vél. Vinnið saman í stuttum slögum, 10-15 sinnum, eða þar til blandan tekur á sig kornótta áferð. Setjið eggið út í og vinnið saman í stuttum slögum þar til eggið hefur bland­ast saman við. Deigið verður líkt og sandur á þessu stigi en mun loða saman þegar því er þrýst ofan í botn­inn á form­inu. Hvolfið blönd­unni ofan í 25 cm bök­un­ar­form með fjar­lægj­an­legum botni og þrýstið deig­inu vel ofan í botn­inn og með fram hlið­unum. Gætið samt að hafa skel­ina ekki of þykka, ef notað er minna bök­un­ar­mót gæti þurft að henda hluta af deig­inu. Setjið skel­ina í frysti í eina klukku­stund.

Hitið ofn­inn í 180°C. Leggið svo bök­un­ar­pappír ofan á skel­ina og hellið því næst þurrk­uðum baunum eða öðru fargi ofan á. Bakið í 20 mín­útur. Fjar­lægið þá papp­ír­inn og fargið og setjið aftur inn í ofn og bakið í 15-20 mín­útur. Látið skel­ina kólna alveg á vír­rekka áður en hún er fjar­lægð úr form­inu.

Súkkulaði­fyll­ing og ber
250 g 70% súkkulaði (eða suðusúkkulaði), saxað
3 dl rjómi
60 g smjör, við stofu­hita og skorið í ten­inga
100 g blönduð ber, t.d. jarð­ar­ber, blá­ber og hind­ber
20 g sneiddar hesli­hnetur, ristaðar

Setjið súkkulaðið í með­al­stóra skál. Hellið rjóm­anum í lít­inn pott og hitið yfir með­al­háum hita þar til rjóm­inn nálg­ast suðu­mark. Hellið helm­ingnum af heitum rjóm­anum yfir súkkulaðið. Bíðið í smá­stund til að leyfa súkkulað­inu að mýkj­ast. Hrærið með písk og hellið síðan rest­inni af rjóm­anum ofan í skál­ina og blandið öllu vel saman. Skiptið yfir í sleikju og hrærið smjör­inu saman við þar til blandan verður kekkja­laus og gljá­andi, látið standa í u.þ.b.15 mín­útur.

Hellið súkkulaði­blönd­unni ofan í skel­ina og smyrjið jafnt yfir. Skreytið með berjum og sneiddum hesli­hnetum. Pensla má bök­una með volgri apríkósusultu til að fá fal­legan gljáa á berin. Látið bök­una jafna sig í kæli í u.þ.b. 30 mín­útur áður en hún er borin fram. Bakan geym­ist vel í kæli í u.þ.b. 2 daga.

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður