„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frábært flatbrauð á grillið

Nú fer að verða grill­hæft, að minnsta kosti að mati okkar Íslend­inga. Við erum þekkt fyrir að láta ekki smá­vegis rign­ingu eða lágt hita­stig koma í veg fyrir að nota grillin okkar. Það er líka ákveð­inn vor­boði þegar grill­lyktin gýs upp í görðum fólks.

Frábært flatbrauð á grillið
Mynd / Aldís Páls­dóttir|Mynd / Aldís Páls­dóttir

Flest þekkjum við það í lok vinnu­dags að þurfa að ákveða hvað eigi að vera í mat­inn á meðan við keyrum frá vinnu í búð­ina. Í lang­flestum til­fellum þarf mat­ur­inn að vera fljót­legur og fram­reiddur án mik­ils til­stands áður en taugatitr­ingur svangra fjöl­skyldu­með­lima verður óbæri­legur. Í slíkum til­fellum er til­valið að nýta grillið og bólstra mál­tíð­ina með brauð­meti. Að grilla brauð er sára­ein­falt. Hér birtum við upp­skrift sem bæði er fljót­leg og afar ljúf­feng. Það er að sjálf­sögðu ein­falt að taka út álegg eða bæta við eftir þörfum. Sósan kom mjög vel út og við mælum með henni.

Flatbrauð með steiktum lauk, sveppum og sesamsmjörssósu

12 tommu flat­brauð

Flat­böku­deig
6 dl hveiti
2 ¾ tsk. lyfti­duft
1 tsk. salt
1 msk. ólífu­olía
2,5 dl vatn

Álegg
6 msk. olía
4 stk. laukur, sneiddur
1 tsk. sjáv­ar­salt
3 por­to­bello-sveppir, sneiddir
1 askja Flúða­sveppir, sneiddir
1 msk. hrís­grjóna­edik
1 msk. sojasósa
1 msk. sam­bal oelek, chili-mauk
2 msk. ólífu­olía, til pensl­unar
3 dl gouda-ostur, eða annar ostur, rif­inn
1 dl parmesa­nostur,rif­inn
hnefa­fylli kletta­kál
3 ferskar fíkjur, skornar í báta

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Setjið þurr­efnin í hræri­vél­ar­skál með hnoð­ara. Setjið olíu og vatn saman við í skömmtum. Hrærið þar til deigið hættir að fest­ast við hræri­vél­ar­skál­ina. Þetta tekur u.þ.b. 3-5 mín. Það má líka gera þetta í höndum. Setjið til hliðar.

Hitið olíu á pönnu við með­al­hita og setjið lauk­inn út á, steikið í 3-4 mín. án þess að hreyfa mikið við honum. Snúið honum einu sinni til tvisvar og steikið áfram í um 5 mín. eða þar til hann hefur brúnast vel, saltið og takið af hit­anum og setjið til hliðar. Hitið 2 msk. olíu á pönnu og steikið svepp­ina í 5 mín. með smá­vegis af salti. Bætið ediki, sojasósu og chili-mauki út á pönn­una og hrærið vel saman við svepp­ina, bragð­bætið með salti og pipar, takið af hit­anum. Fletjið deigið út.

Hitið grillið á með­al­hita og penslið grill­grind­ina með olíu. Passið að hafa hana hreina áður en þið byrjið. Gott er hafa áleggið við hönd­ina svo ekki þurfi að fara frá grill­inu á meðan botn­inn grill­ast. Setjið botn­inn á grillið og eldið báðum megin í 2-3 mín. á hvorri hlið eða þar til góðar grill­rendur hafa mynd­ast. Snúið botn­inum með töng.

Takið botn­inn af grill­inu og penslið með olíu, dreifið hluta af ost­inum yfir, dreifið lauknum og svepp­unum yfir ost­inn og svo að síð­ustu afgang­inum af ost­inum. Setjið aftur á grillið með lokið á þar til ost­ur­inn bráðnar, eða í um 3-5 mín., takið af grill­inu. Stráið kletta­káli og fíkju­bátum yfir og berið fram með sós­unni.

Græn sesamsmjörsósa
2 dl tahini-sesamsmjör
hnefa­fylli stein­selja
safi úr einni sítrónu
1 dl ólífu­olía
1 skalot­laukur
hnefa­fylli ferskt dill
2 hvít­lauks­geirar
salt og pipar eftir smekk

Setjið öll inni­halds­efni í bland­ara og látið vél­ina ganga í um eina mín. eða þar til sósan er orðin silki­mjúk og græn. Bragð­bætið með salti og pipar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður