„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gómsæt grilluð rif

Grilluð svínarif með krydd­blöndu og BBQ-sósu eru ómissandi hluti af grill­menn­ingu margra ríkja í Banda­ríkj­unum, sér­stak­lega í Suð­ur­ríkj­unum. Nálgunin á mat­inn er ólík eftir svæðum en alls staðar er þetta fingra­matur sem er eilítið subbu­legur en að sama skapi mjög skemmti­legt að borða.

Gómsæt grilluð rif

Hér eru svínarifin nudduð með krydd­blöndu, vand­lega vafin inn í álp­appír og elduð í ofni í nokkrar klukku­stundir svo að rifin verði meyr og kjötið renni af bein­unum. Rifin eru síðan kláruð á grill­inu til að fá hinn óvið­jafn­an­lega grill­keim.

Grilluð svínarif

Hægt er að for­elda rifin deg­inum áður. Vefjið þeim þá vand­lega inn í álp­appír og geymið í kæli. Takið út og grillið þar til þau eru orðin heit í gegn og komin með fal­lega skorpu frá hit­anum á grill­inu.

1 msk. salt
1 msk. sinn­eps­duft
1 msk. papriku­krydd
½ tsk. chili-duft
½ tsk. mal­aður svartur pipar
1 hryggur grísarif, án krydds og mar­iner­ingar
150 BBQ-sósa

1. skref Hitið ofn í 170°C og takið saman hrá­efnið. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
2. skref Blandið saman salti, sinn­eps-, papriku- og chili-dufti ásamt svörtum pipar í lít­illi skál. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
3. skref Nuddið krydd­blönd­unni í rifin. Pakkið þeim síðan vand­lega inn í álp­appír, leggið í ofn­skúffu og bakið í ofni í 2 ½-3 klst. eða þar til kjötið er orðið alveg meyrt. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
4. skref Takið rifin úr ofn­inum, fjar­lægið álp­app­ír­inn og hellið kjötsafanum í skál. Blandið honum síðan saman við BBQ-sós­una. Látið rifin kólna. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
5. skref Hitið grillið að háum hita. Grillið rifin, snúið þeim reglu­lega og penslið með BBQ-sós­unni, u.þ.b. 8-10 mín. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
6. skref Takið af grill­inu og skerið rifin í sundur. Berið fram með meiri BBQ-sósu. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir

BBQ-sósa

Það er mjög ein­falt að búa til eigin BBQ-sósu og lík­legt að flestir eigi nauð­syn­legt hrá­efni til í skáp­unum hjá sér. Auðvelt er að leika sér með upp­skrift­ina og bæta t.d. við chili-dufti eða chili-sósu fyrir þá sem vilja smá­vegis hita.

2 dl epla­edik
4 msk. sinnep
2 dl tómatsósa
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
200 g púð­ur­sykur
5 hvít­lauks­rif, rifin með rifjárni
3-4 dropar liquid smoke, má sleppa

Setjið allt hrá­efnið í pott og hrærið saman. Náið upp hægri suðu og lækkið síðan hit­ann og látið malla í u.þ.b. 10 mín. eða þar til blandan þykknar og verður seig­fljót­andi.

BBQ-sósa. Mynd/Aldís Páls­dóttir Stílisti / Folda Guð­laugs­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppskirftir

Hrikalega góð hreindýralund með rauðvínssósu og steinseljurótarmús
Mannlífið

Hrika­lega góð hrein­dýra­lund með rauð­víns­sósu og stein­selju­rót­ar­mús

Hreindýr er hreint lost­æti og því frá­bær jóla­matur hvort sem er á aðfanga­dag eða aðra hátíð­ar­daga. Hrein­dýra­kjöt er fremur auð­velt að með­höndla og elda og villi­bragðið gerir það mjög hátíð­legt og spenn­andi kost. Meðlætið er ekki síður mik­il­vægt en rót­ar­græn­meti passar t.d. vel með því og svo er alltaf gott að hafa eitt­hvað grænt eins og baunir eða brokk­ólí. Sósan...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður