„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Viljum sýna brauðtertunni þann heiður sem hún á skilinn“

Mið­bær­inn mun iða af lífi um helg­ina á Menn­ing­arnótt Reykja­víkur og við­burð­irnir væg­ast sagt fjöl­breyttir. Einn þeirra er brauðtertu­keppni og við spurðum Erlu Hlyns­dóttur, annan for­sprakka Facebook-hóps­ins Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu, út í þennan ein­staka við­burð.

„Viljum sýna brauðtertunni þann heiður sem hún á skilinn“
Erla Hlyns­dóttir.

„Brauðtertan er veiga­mik­ill þáttur í íslenskri mat­ar­menn­ingu. Flest höfum við smakkað brauðtertur í fjöl­skyldu­veislum eða á tíma­mótum þegar fólk vill gera vel við sig og aðra. Ekki fyrir löngu mætti segja að brauðtert­urnar hafi meira eða minna horfið af veislu­borð­unum en ljóst er að þær eru farnar að njóta sín á ný. Við viljum sýna brauðtert­unni þann heiður sem hún á skil­inn og boðum því til brauðtertu­sam­keppni í Lista­safni Reykja­víkur á Menn­ing­arnótt,“ segir Erla.

Skipu­leggj­endur keppn­innar eru hönn­uð­irnir Tanja Huld Levý og Valdís Stein­ars­dóttir í sam­starfi við Erlu Hlyns­dóttur og Erlu Gísla­dóttur, for­sprakka Facebook-hóps­ins Brauðtertu­fé­lag Erlu og Erlu, sem áhuga­samir hafa fjöl­mennt í frá stofnun. Keppt er í þremur flokkum: Fal­leg­asta brauðtertan, frum­leg­asta brauðtertan og bragð­besta brauðtertan. Dómarar eru ekki af verri end­anum. Margrét D. Sig­fús­dóttir, skóla­meist­ari Hús­stjórn­ar­skól­ans í Reykja­vík, Siggi Hall, mat­gæð­ingur með meiru, og Erla Hlyns­dóttir úr áður­nefndu brauðtertu­fé­lagi.

„Vinn­ingar eru marg­vís­legir. Meiður tré­smiðja gefur fram­reiðslu­bretti fyrir brauðtertur en fyr­ir­tækið var valið hand­verks­maður árs­ins á Hand­verks­há­tíð­inni á Hrafna­gili í ágúst­byrjun. Pro Gastro gefur skreyt­inga­sett, jap­anskan brauð­hníf og græn­met­is­hnífa. Tómat­paradísin Frið­heimar í Reyk­holti gefur glæsi­lega vinn­inga. Ásbjörn Ólafsson ehf. gefur stál­bakka fyrir brauðtertur. Þá verða líka brauðtertu­hand­klæði sem Tanja Levý hann­aði,“ segir Erla.

„Húsið opnar klukkan 14 og fyrsta klukku­tím­ann geta gestir og gang­andi komið og skoðað dýrð­ina. Eftir að dóm­arar hafa gert upp hug sinn og til­kynnt um sig­ur­veg­ara býðst gestum að smakka allar brauðtert­urnar. Við höfum hvatt þátt­tak­endur til að nefna brauðtert­urnar sínar, til að gera þetta enn skemmti­legra. Öllum er heimil þátt­taka en við höfum ekki rými fyrir fleiri en þrjá­tíu brauðtertur. Þegar hafa um tutt­ugu stað­fest þátt­töku en áhuga­samir eru hvattir til að senda póst á [email protected] og athuga hvort enn er pláss. Við viljum endi­lega að sem flestir séu með.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brauðtertur

Myndband: Skinkubrauðterta sem allir elska
Mannlífið

Myndband: Skinku­brauðterta sem allir elska

Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að við á Gest­gjaf­anum höfum verið í sann­köll­uðu brauðtertu­stuði und­an­farnar vikur, enda gott að henda í brauðtertur til að hvíla köku­átið en köku­blað Gest­gjafans var einmitt að koma í versl­anir. Þessi brauðterta er afar fersk og góð en samt nokkuð klass­ísk og því finnst eig­in­lega öllum hún góð. Brauðtert­una er afar auð­velt að gera eins og sést vel á mynd­band­inu sem fylgir með. Veði ykkur að góðu.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins