„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Myndband: Sjúklegur sælkerahamborgari á grillið

Allir elska ham­borg­ara enda fátt þægi­legra og betra en góður ham­borg­ari á grillið.

Myndband: Sjúklegur sælkerahamborgari á grillið

Hammari er ný teg­und ham­borg­ara frá SS en þeir eru laus­mót­aðir og inni­halda 20% fitu sem gerir þá ein­stak­lega safa­ríka og bragð­góða. Hægt er að fá þá í þremur stærðum, í 90 g, 120 g eða 140 g sem er hag­kvæmt enda sumir sem vilja þykka borg­arar á meðan aðrir vilja þunna. Laus­mót­unin tryggir betri steik­ingu því hita­dreif­ingin er jafn­ari hvort sem borg­ar­arnir eru steiktir á grilli eða pönnu.

En það sem gerir góðan borg­ara fram­úr­skar­andi er það sem sett er á milli með honum. Við á Gest­gjaf­anum tókum þennan borg­ara upp á næsta stig og gerðum hann að algjörum sæl­kera­borg­ara.

Hamborgari með Havarti osti og lúxus beikoni
fyrir 2

Hamborgarasósa

¼ haus jökla­salat (Iceberg), fínt skorið
2 msk. mæj­ónes
1 msk. tómatsósa
1 tsk. tabasco chipotle / eða chipotle-mauk
1 tsk. Worcestershire sósa

Blandið öllum hrá­efnum saman í skál og setjið til hliðar.

Sýrður rauðlaukur

1 lít­ill rauð­laukur, afhýddur og skor­inn í þunnar sneiðar
2 msk. epla­edik
1 tsk. sjáv­ar­salt

Setjið skor­inn rauð­lauk í skál og blandið ediki saman við ásamt sjáv­ar­salti. Látið standa í 10 mín. áður en hann er bor­inn fram.

Hamborgari

2 sneiðar lúxus beikon
2 stk. Hammari 120 g eða 140 g laus­mót­aðir frá SS
1-2 msk. ólífu­olía
1-2 tsk. sjáv­ar­salt
1 tsk. nýmal­aður svartur pipar
1-2 tsk. dijon sinnep
2 stk. góð ham­borg­ara­brauð
2 þykkar sneiðar af Havarti osti frá Bió búi
1 buffalótómatur, skor­inn í miðl­ungs­þykkar sneiðar

Hitið grill og hafið á háum hita. Grillið beikonið í 5-10 mín. eða þar til það er orðið stökkt og setjið á pappír til hliðar. Grillið ham­borg­ara­brauðin með beikon­inu þar til það hefur hitnað og látið til hliðar.

Penslið ham­borg­ar­ana með olíu og sáldrið yfir salti og pipar. Setjið ham­borg­ar­ana á grillið og grillið í 1 mín. snúið þeim því næst við og penslið grill­uðu hlið­ina með ½ tsk. af dijon-sinn­epi. Grillið áfram í 1 mín. snúið ham­borg­ur­unum við og grillið áfram í 1. mín. penslið hina hlið­ina með ½ tsk. af dijon-sinn­epi. Leggið sneiðar af osti ásamt beikoni ofan á ham­borg­ar­ana og eldið áfram í 1 mín. eða þar til ost­ur­inn er byrj­aður að bráðna og ham­borg­ar­inn er eld­aður.

Setjið ham­borg­arasósu á botn­inn á ham­borg­ara­brauði, leggið tómat­sneið ofan á ásamt ham­borg­ara með osti og beikoni, sýrðum rauð­lauk og meira af ham­borg­arasósu. Berið fram með með­læti eftir smekk.

Við pöruðum þennan rétt með áhuga­verðu áströlsku rauð­víni sem heitir því skemmti­lega nafni 19 Crimes, The upris­ing. Vínið er látið liggja í romm tunnum sem gefur því gott bragð, það er kröft­ugt með svolitla sætu. Vínið passar vel með grill­uðu kjöt­inu og beikon­inu.

Mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Stílis­er­ing og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynda­taka/  Hallur Karlsson og Hákon Davíð Björns­son
Klipping / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aðalréttir

Einfalt og fljótlegt á nýju ári
Mannlífið

Einfalt og fljót­legt á nýju ári

Eftir allar hátíð­ar­kræs­ing­arnar sem hafa ein­kennt und­an­farna daga er freist­andi að hafa hlut­ina ein­falda og fljót­lega núna þegar kemur að elda­mennsku. Hérna kemur smá sam­an­tekt yfir rétti sem eiga það sam­eig­in­legt að vera til­tölu­lega fljót­legir og ein­faldir. Ótrúlega ein­föld laxa­baka Þessa er til­valið að græja í miðri viku. Mynd / Rakel Ósk Fljót­legur sítrónu­fisk­réttur Full­komið með soðnum kart­öflum. Mynd /...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður