Grillað skötusels og chorizo-kebab
8-10 pinnar
8-10 grilltrépinnar
3-4 msk. ólífuolía
2 msk. smjör, bráðið
1 tsk. chiliflögur
1 tsk. tímían
2 tsk. rósapipar, steyttur
salt og pipar eftir smekk
500 g skötuselur, í munnstórum bitum
12 sérrítómatar
300 g chorizo-pylsa, skorin í sneiðar
2 rauðlaukar, skornir í báta
hnefafylli steinselja, söxuð, má sleppa
safi úr hálfri sítrónu
Látið grillpinnana liggja í vatni á meðan þið útbúið matinn. Blandið ólífuolíu, smjöri, chiliflögum, tímían og rósapipar í skál og setjið fiskinn saman við. Látið marinerast í 30 mín. Þræðið 3 bita af fiski, 2-3 tómata, 2-3 pylsubita og 1-2 laukbita á hvern pinna. Grillið í 2-3 mínútur á hvorri hlið en passið að ofgrilla fiskinn ekki. Dreypið sítrónusafa yfir hvern pinna og stráið steinselju yfir. Berið fram með salati og sítrónubátum og ef til vill grillaðri kartöflu og góðri sósu.




















Athugasemdir