„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólveig Anna slegin yfir ummælum lögfræðings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðningi við geranda“

Sólveig Anna slegin yfir ummælum lögfræðings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðningi við geranda“
Mynd/skjá­skot RÚV/sam­sett

„Það er satt best að segja ótrú­legt að upp­lifa þá miklu ger­enda­með­virkni sem ríkir innan stærstu hreyf­ingar vinn­andi fólks á Íslandi. Hún sést með skýrum hætti í fram­ferði lög­fræð­ings ASÍ og einnig í því hversu stór hópur úr fram­varða­sveit íslensku verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er til­bú­inn til að sýna mann­inum sem rek­inn var í gær frá Eflingu mikla og inni­lega hlut­tekn­ingu á Facebook-vegg hans, þar sem öll geta séð, líka þær fjöl­mörgu konur sem til­heyra félögum innan ASÍ.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóndóttir, fyrrum for­maður Eflingar, í pistli á Facebook-síðu sinni í dag.

Vísar hún þarna í pistil Tryggva Mart­eins­sonar, sem hann skrif­aði á eigin Facebook-síðu í gær eftir að hafa verið sagt upp störfum sem kjara­full­trúi Eflingar eftir 27 ára starf, og þau fjöl­mörgu stuðn­ings­orð sem honum hafa verið send í formi athuga­semda við pistil­inn. Sólveig Anna tekur sér­stak­lega fyrir athuga­semd frá Magnúsi M. Norðdahl, lög­fræð­ingi Alþýðu­sam­bands Íslands. Þar segir Magnús:

„Ömur­legar fréttir kæri félagi – á löngum ferli mínum í störfum fyrir þetta stóra stétt­ar­fé­lag hefur mig aldrei verið orði á þig hallað – þvert á móti.“

Sólveig Anna hefur áður sagt frá því að Tryggvi hafi hótað henni með ofbeldi þegar hún starf­aði enn sem for­maður Eflingar.

Tryggvi Mart­eins­son. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna birtir í pistli sínum bréf, sem hún seg­ist þegar hafa sent á Magnús Norðdahl. Afrit af bréf­inu fóru til Drífu Snædal, for­seta ASÍ og Höllu Gunn­ars­dóttur, fram­kvæmda­stjóra ASÍ.

Í bréf­inu segir meðal ann­ars að Tryggvi Mart­eins­son hafi hótað Sólveigu ofbeld­is­verkum á heim­ili hennar. Hún segir að hót­un­inni hafi fylgt nákvæm útlistun á því hvernig Tryggvi hefði áður látið hót­anir sínar gegn meintum óvinum verða að veru­leika. Hún segir hann einnig hafa talað um að ef hann léti verða af verkn­að­inum í þessu til­felli myndi hann ein­ungis hljóta skil­orðs­bund­inn dóm ef hann yrði dæmdur.

Átti engan þátt í uppsögn Tryggva

„Eins og ég hef greint frá opin­ber­lega þá liggur fyrir skrif­legur vitn­is­burður frá starfs­mann­inum sem hann orð­aði hót­anir sínar við. Þessi vitn­is­burður kom fram bæði í sam­tölum við aðra starfs­menn, m.a. trún­að­ar­mann vinnu­stað­ar­ins, og í skrif­legum sam­skiptum sem liggja hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Eflingar.

Ég féll frá ósk um aðgerðir vegna máls­ins af hálfu stjórn­enda á skrif­stofu Eflingar en kaus þess í stað að til­kynna um hót­un­ina til lög­reglu, eins og ég hef líka sagt frá opin­ber­lega.

Skömmu síðar fór af stað atburða­rás sem leiddi til þess að ég sagði af mér sem for­maður Eflingar.“

Sólveig Anna seg­ist ekki hafa átt neinn þátt í þeirri ákvörðun núver­andi stjórn­enda að víkja Tryggva úr starfi. Hún seg­ist ekki hafa vitað af þessu fyrr en eftir á.

„Ég hef því ekki áreið­an­lega vit­neskju um ástæður upp­sagnar, en sam­hengið er þó aug­ljóst.

Í gær­kvöldi birti starfs­mað­ur­inn stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann segir frá upp­sögn­inni. Hann upp­nefnir af þessu til­efni stjórn­endur Eflingar „komm­ún­ista“, seg­ist hafa „goldið þess“ að vera „karl­maður og Íslend­ingur“, og notar tæki­færið í ummælum neðan við færsl­una til að spyrja hvort Efling sé að breyt­ast í „pólska útgáfu af stétt­ar­fé­lagi“. Upp­færsla starfs­manns­ins er opin­ber og öllum Facebook-not­endum sýni­leg.“

Sakar Magnús um gerendameðvirkni

Sólveig víkur að ofan­greindum ummælum Magnúsar í athuga­semd við færslu Tryggva.

„Þú ert lög­fræð­ingur Alþýðu­sam­bands Íslands og nýtur sem slíkur mik­illar virð­ing­ar­stöðu. Horft er til orða þinna ekki aðeins sem leið­sagnar eða álits, heldur jafn­vel sem ein­hvers konar úrskurðar, enda er það svo að Alþýðu­sam­band­inu er treyst til að skera úr um ýmis mál sem varða aðild­ar­fé­lögin og kemur þá iðu­lega til þinna kasta.“

Sólveig seg­ist aldrei hafa gert kröfu um afskipti Magnúsar eða ASÍ af mál­inu.

„Hins vegar get ég ekki hjá því kom­ist að lýsa undrun minni og raunar áfalli að verða vitni að því að þú sjáir þig knú­inn að stíga fram með þessum hætti.

Með orðum þínum lýsir þú frammi fyrir almenn­ingi samúð og stuðn­ingi við ger­anda í ofbeld­is­máli, og kastar um leið opin­ber­lega rýrð á frá­sögn mína sem þol­anda hót­unar af hálfu við­kom­andi. Þetta gerir þú jafn­vel þú hljótir að vera upp­lýstur um inn­tak þess sem ég hef greint frá um málið, þ.e.a.s. hversu ein­beittum vilja til ofbeld­is­verkn­aðar var lýst, að vitn­is­burður liggi fyrir og að málið hafi verið til­kynnt verið til lög­reglu.“

Telur Magnús gera ASÍ vanhæft til aðkomu að ofbeldismálum

Sólveig Anna fer í pistl­inum yfir þá vit­und­ar­vakn­ingu sem orðið hefur síð­ustu ár um hlut­verk verka­lýðs­fé­laga í málum sem snúa að kyn­bundnu ofbeldi og áreiti.

Varða – rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins fram­kvæmdi rann­sókn á málum er varða kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og ofbeldi að beiðni mið­stjórnar ASÍ og stjórnar BSRB.

„Ég tel að með fram­göngu þinni hafir þú gert Alþýðu­sam­bandið van­hæft til aðkomu að málum sem snerta kyn­bundið ofbeldi og áreiti. Stofnun sem felur karli með þín við­horf og hug­myndir um hvað telst ásætt­an­leg opin­ber fram­ganga í slíkum málum stöðu æðsta lög­fræði­valds hefur tapað trú­verð­ug­leika sínum.

Enginn þol­andi í kyn­bundnu ofbeldis- eða áreitn­is­máli getur treyst því að mál þeirra fái fag­lega eða hlut­lausa með­ferð af hálfu ASÍ meðan þú gegnir þar þeirri stöðu sem þú gerir.

Ég er ekki lengur í stöðu for­manns Eflingar. Ég skrifa þér því þessar línur sem almennur félagi í einu af aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands­ins og sem þol­andi ofbeldis af hálfu starfs­manns á skrif­stofu sama félags.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Efling orðin aðili að Bandalagi norræna stéttarfélaga í þjónustugeiranum:„Við erum stolt og ánægð!“
Innlent

Efling orðin aðili að Banda­lagi nor­ræna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum:„Við erum stolt og ánægð!“

Efling hefur nú gengið inn í SUN, Bandalag nor­ræna stétt­er­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum. Eft­ir­far­andi texti má lesa í frétta­til­kynn­ingu sem finna má í heild sinni á vef Eflingar: Efling stétt­ar­fé­lag hefur hlotið aðild að banda­lagi nor­rænna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum, SUN, og verður þar full­gilt aðild­ar­fé­lag um næstu mán­að­ar­mót. Aðildin mun nýt­ast félag­inu afar vel við frek­ari upp­bygg­ingu á félags­legu starfi, segir...
Gabríel Benjamin telur félagsfund Eflingar geta breytt stöðunni: „Allir vita að þetta voru mistök“
Innlent

Gabríel Benjamin telur félags­fund Eflingar geta breytt stöð­unni: „Allir vita að þetta voru mis­tök“

„Ég fagna því að þarna fái félags­menn í raun og veru að láta í sér heyra, segja hvað þeim finnst um þennan gjörn­ing,“ segir Gabríel Benjamin, kjara­mála­full­trúi hjá Eflingu, um fyr­ir­hug­aðan félags­fund stétt­ar­fé­lags­ins. Fund­ur­inn verður hald­inn mið­viku­dag­inn 27. apríl klukkan 18, í Vals­heim­il­inu. Gabríel Benjamin er trún­að­ar­maður þess starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sem er skráð í stétt­ar­fé­lagið VR og tekur það...
Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“
Innlentstéttarfélög

Atvinnu­aug­lýs­ing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfs­fólkið okkar“

Atvinnu­aug­lýs­ing frá Eflingu birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun. Um er að ræða þau störf sem starfs­fólkið sem var sagt upp í vik­unni gegndi, með nokkrum breyt­ingum. Meðal hæfn­iskrafa er íslensku­kunn­átta og hafa sum störf á skrif­stof­unni verið lögð niður. Um er að ræða heil­síðu­aug­lýs­ingu á for­síðu atvinnu­aug­lýs­inga Frétta­blaðs­ins. Efst í aug­lýs­ing­unni er spurt stórum stöfum: „Vilt þú taka þátt í...
Sólveig Anna harðorð í garð Drífu Snædal: „Starfsfólk hvatt til að sækja um störf að nýju“
Innlentstéttarfélög

Sólveig Anna harð­orð í garð Drífu Snædal: „Starfs­fólk hvatt til að sækja um störf að nýju“

Sólveig Anna Jóns­dóttir hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún mót­mælir gagn­rýni Drífu Snædal, for­seta ASÍ, á þá ákvörðun stjórnar Eflingar að segja upp öllu starfs­fólki á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins. Sólveig Anna segir að yfir­lýs­ingar Drífu séu órök­studdar. Um sé að ræða lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir stjórnar Eflingar „varð­andi innri skipu­lags­mál á skrif­stofum félags­ins.“ Í yfir­lýs­ingu Sól­veigar Önnu segir að sú ákvörðun...
Sumir sagðir í áfalli vegna uppsagnanna: Starfsmannafundur hjá Eflingu í dag
Innlentstéttarfélög

Sumir sagðir í áfalli vegna upp­sagn­anna: Starfs­manna­fundur hjá Eflingu í dag

Starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar hefur boðað til starfs­manna­fundar í dag, en í gær var greint frá því að öllu starfs­fólki skrif­stof­unnar hafi verið sagt upp. Þetta kemur fram á RÚV. Samkvæmt Vísi lagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, nýkjör­inn for­maður Eflingar, til á stjórn­ar­fundi félags­ins í gær að öllu starfs­fólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var sam­þykkt af átta manna meiri­hluta...
Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“
Innlentstéttarfélög

Sólveig tjáir sig um hót­anir: „Kallaði mig alltaf „kon­una“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað frá að hverfa sem for­maður Eflingar hefur hún gefið út sex yfir­lýs­ingar á Facebook-síðu sinni. Þær hafa allar að gera með brott­hvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja að baki. Sömu­leiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrif­stofu Eflingar. Sólveig Anna hefur enn ekki viljað tala beint við fjöl­miðla. Hún...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins