„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“

Atvinnuauglýsing Eflingar birt: „Nú stendur til að reka út úr húsi erlenda starfsfólkið okkar“

Atvinnu­aug­lýs­ing frá Eflingu birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun. Um er að ræða þau störf sem starfs­fólkið sem var sagt upp í vik­unni gegndi, með nokkrum breyt­ingum. Meðal hæfn­iskrafa er íslensku­kunn­átta og hafa sum störf á skrif­stof­unni verið lögð niður.

Um er að ræða heil­síðu­aug­lýs­ingu á for­síðu atvinnu­aug­lýs­inga Frétta­blaðs­ins. Efst í aug­lýs­ing­unni er spurt stórum stöfum: „Vilt þú taka þátt í að byggja upp metn­að­ar­fyllsta stétt­ar­fé­lag lands­ins?“

Gabríel Benjamín, kjara­mála­full­trúi hjá Eflingu og trún­að­ar­maður þeirra tíu starfs­manna skrif­stof­unnar sem eru í VR, segir í sam­tali við RÚV að það hafi ekki verið fyrr en í dag, þegar atvinnu­aug­lýs­ingin birt­ist, að margt starfs­fólk skrif­stofu Eflingar hafi kom­ist að því að störf þeirra væru ekki lengur til.

Starfs­fólkið hafi á sama tíma kom­ist að því að allt í einu væri íslensku­kunn­átta orðin skil­yrði fyrir mörg þau störf sem krefj­ist hennar ekki.

„Í Eflingu býr mik­ill mannauður og fjöl­breytni hefur verið styrkur okkar. En nú stendur til að útrýma henni og reka út úr húsi erlenda starfs­fólkið okkar sem hefur byggt upp starfið og stutt við erlendu félags­menn okkar hvað best. Mér finnst þetta til hábor­innar skammar,“ segir Gabríel Benjamín í sam­tali við RÚV.

Hann seg­ist eiga von á því að margir leiti ráða hjá VR eftir páska.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur verið gagn­rýndur tölu­vert síð­ustu daga fyrir að taka ekki skýra afstöðu í mál­inu. Enda séu, eins og áður sagði, um tíu starfs­menn af þeim sem sagt var upp, í VR.

Í sam­tali við frétta­stofu RÚV í gær sagð­ist Ragnar Þór ekki hafa átt von á hóp­upp­sögn­inni. „Það hafa nátt­úru­lega verið gríð­ar­leg átök í kringum félagið sem end­aði með risa­stóru upp­gjöri í síð­ustu kosn­ingum til for­manns og stjórnar. Maður bjóst alveg við því að það yrðu breyt­ingar og eitt­hvað í kjöl­farið sem myndi ger­ast, en ég átti ekki alveg von á þessu.“

Ragnar Þór sagði stjórn VR hingað til hafa ekki viljað íhlut­ast í þær deilur og átök sem hafa verið á skrif­stofu Eflingar.

„Það hefur nátt­úru­lega verið þrýst­ingur á mig og félagið að vera með yfir­lýs­ingar sem aftur hefur verið mjög erfitt vegna þess að við erum í mjög við­kvæmri stöðu gagn­vart þeim félags­mönnum sem við erum að verja hags­muni fyrir.“

Ragnar sagði það stjórn­ar­innar að taka ákvörðun um það hvort til stæði að bland­ast meira inn í mál­efni Eflingar eða stétt­ar­fé­lags­ins. Það yrði tekið fyrir á stjórn­ar­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Efling orðin aðili að Bandalagi norræna stéttarfélaga í þjónustugeiranum:„Við erum stolt og ánægð!“
Innlent

Efling orðin aðili að Banda­lagi nor­ræna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum:„Við erum stolt og ánægð!“

Efling hefur nú gengið inn í SUN, Bandalag nor­ræna stétt­er­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum. Eft­ir­far­andi texti má lesa í frétta­til­kynn­ingu sem finna má í heild sinni á vef Eflingar: Efling stétt­ar­fé­lag hefur hlotið aðild að banda­lagi nor­rænna stétt­ar­fé­laga í þjón­ustu­geir­anum, SUN, og verður þar full­gilt aðild­ar­fé­lag um næstu mán­að­ar­mót. Aðildin mun nýt­ast félag­inu afar vel við frek­ari upp­bygg­ingu á félags­legu starfi, segir...
Gabríel Benjamin telur félagsfund Eflingar geta breytt stöðunni: „Allir vita að þetta voru mistök“
Innlent

Gabríel Benjamin telur félags­fund Eflingar geta breytt stöð­unni: „Allir vita að þetta voru mis­tök“

„Ég fagna því að þarna fái félags­menn í raun og veru að láta í sér heyra, segja hvað þeim finnst um þennan gjörn­ing,“ segir Gabríel Benjamin, kjara­mála­full­trúi hjá Eflingu, um fyr­ir­hug­aðan félags­fund stétt­ar­fé­lags­ins. Fund­ur­inn verður hald­inn mið­viku­dag­inn 27. apríl klukkan 18, í Vals­heim­il­inu. Gabríel Benjamin er trún­að­ar­maður þess starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sem er skráð í stétt­ar­fé­lagið VR og tekur það...
Sólveig Anna harðorð í garð Drífu Snædal: „Starfsfólk hvatt til að sækja um störf að nýju“
Innlentstéttarfélög

Sólveig Anna harð­orð í garð Drífu Snædal: „Starfs­fólk hvatt til að sækja um störf að nýju“

Sólveig Anna Jóns­dóttir hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún mót­mælir gagn­rýni Drífu Snædal, for­seta ASÍ, á þá ákvörðun stjórnar Eflingar að segja upp öllu starfs­fólki á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins. Sólveig Anna segir að yfir­lýs­ingar Drífu séu órök­studdar. Um sé að ræða lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir stjórnar Eflingar „varð­andi innri skipu­lags­mál á skrif­stofum félags­ins.“ Í yfir­lýs­ingu Sól­veigar Önnu segir að sú ákvörðun...
Sumir sagðir í áfalli vegna uppsagnanna: Starfsmannafundur hjá Eflingu í dag
Innlentstéttarfélög

Sumir sagðir í áfalli vegna upp­sagn­anna: Starfs­manna­fundur hjá Eflingu í dag

Starfs­fólk á skrif­stofu Eflingar hefur boðað til starfs­manna­fundar í dag, en í gær var greint frá því að öllu starfs­fólki skrif­stof­unnar hafi verið sagt upp. Þetta kemur fram á RÚV. Samkvæmt Vísi lagði Sólveig Anna Jóns­dóttir, nýkjör­inn for­maður Eflingar, til á stjórn­ar­fundi félags­ins í gær að öllu starfs­fólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var sam­þykkt af átta manna meiri­hluta...
Sólveig Anna slegin yfir ummælum lögfræðings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðningi við geranda“
Innlentstéttarfélög

Sólveig Anna slegin yfir ummælum lög­fræð­ings ASÍ: „Lýsir samúð og stuðn­ingi við ger­anda“

„Það er satt best að segja ótrú­legt að upp­lifa þá miklu ger­enda­með­virkni sem ríkir innan stærstu hreyf­ingar vinn­andi fólks á Íslandi. Hún sést með skýrum hætti í fram­ferði lög­fræð­ings ASÍ og einnig í því hversu stór hópur úr fram­varða­sveit íslensku verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er til­bú­inn til að sýna mann­inum sem rek­inn var í gær frá Eflingu mikla og inni­lega hlut­tekn­ingu á Facebook-vegg...
Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“
Innlentstéttarfélög

Sólveig tjáir sig um hót­anir: „Kallaði mig alltaf „kon­una“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað frá að hverfa sem for­maður Eflingar hefur hún gefið út sex yfir­lýs­ingar á Facebook-síðu sinni. Þær hafa allar að gera með brott­hvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja að baki. Sömu­leiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrif­stofu Eflingar. Sólveig Anna hefur enn ekki viljað tala beint við fjöl­miðla. Hún...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins