„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Smákökur sem bráðna í munni

Jólin verða seint full­komnuð ef ekki eru smákökur í hús­inu, bök­un­ar­lyktin ein og sér er til þess fallin að koma flestum í jóla­skap í myrkasta skamm­deg­inu. Með­fylgj­andi er upp­skrift að góm­sætum Alfajores-smákökum sem bráðna í munni.

Smákökur sem bráðna í munni

Sumir baka ótal­margar sortir fyrir jólin og kepp­ast við að fylla allar áldollur af marg­vís­legu bök­uðu góð­gæti á meðan aðrir eiga eina til tvær upp­á­halds­upp­skriftir sem þykja ómissandi. Hvort sem kök­urnar eru bornar fram með stöku mjólk­ur­glasi fyrir börnin eða á fal­legum bökkum í kaffi­boð­inu er eitt víst, jólin væru fátæk­legri án þess­ara ljúfu bita.

Alfajores
u.þ.b. 12 smákökur

Þessar smákökur eru vin­sælar í Mið- og Suður-Ameríku þar sem þær eru oft seldar á kaffi­húsum ásamt bolla af rót­sterku kaffi. Aðal­uppi­staðan í smákök­unum er maís­mjöl og smjör sem fá þær til að bráðna í munn­inum. Í okkar útfærslu dýfum við þeim að hluta til ofan í súkkulaði og sáldrum rifnu kókos­mjöli yfir. Öðruvísi smákökur fyrir ævin­týra­gjarna sæl­kera.

200 g smjör, saltað
80 g flór­sykur
½ tsk. vanillu­dropar
1 tsk. rif­inn sítrónu­börkur
150 g maís­mjöl
150 g hveiti
1½ dl Dulce de leche (hægt að kaupa til­búið, t.d. frá Stonewall)
100 g dökkt súkkulaði
3 msk. kókos­mjöl

Hrærið saman smjör og flór­sykur þar til blandan verður létt og krem­kennd, bætið vanillu­dropum og sítrónu­berki saman við. Sigtið saman maís­mjöl og hveiti. Hrærið það saman við smjör­blönd­una á lágri still­ingu. Hvolfið deig­inu úr skál­inni á hveitist­ráðan flöt og hnoðið létt til. Fletjið út í disk og vefjið plast­filmu utan um. Geymið í kæli í hálf­tíma.

Hitið ofn­inn í 170°C og leggið bök­un­ar­pappír ofan á ofn­plötu. Takið deigið úr ísskápnum og látið standa í 5 mín­útur til að mýkja deigið aðeins. Fletjið út þar til það verður u.þ.b. 4 mm að þykkt. Notið köku­skera til að skera út form í deigið, ákjós­an­leg­ast er að nota form sem er 5 cm að þver­máli. Raðið smákök­unum á ofn­plöt­una og setjið inn í kæli í 10-15 mín­útur.

Bakið í 10-12 mín­útur eða þar til þær fara að gyll­ast við endana. Látið kólna á grind og smyrjið með dulce de leche. Setjið u.þ.b. 1 tsk. af kara­mell­unni ofan á botn­inn á helm­ing kakanna. Leggið síðan ósmurða smáköku ofan á og snúið botn­unum í sitt­hvora átt­ina til að dreifa jafnt út kara­mell­unni. End­ur­takið við rest­ina af smákök­unum og raðið á grind.

Bræðið súkkulaðið yfir vatns­baði og takið af hit­anum. Dýfið smákök­unum ofan í til þriðj­ungs eða hálfs og leggið síðan aftur á grind­ina. Sáldrið kókos­mjöli yfir súkkulaðið áður en það storknar.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Ljós­mynd­ari / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður